12.11.2007 | 17:21
Íslandsheimsókn..
Eftir að ég keyrði upp á Hvanneyri þá komu börnin til Valda. Jakob og Linda hafa stækkað og Sunna er búin að lita hárið á sér rautt. Jakob er líka búinn að lita sitt svart... Linda er líka byrjuð að spila á fiðlu. Við erum bara búin að vera í burtu í varla þrjá mánuði og samt hafa þau stækkað og þroskast svo mikið...
Ferðin mín upp á Hvanneyri gekk vel en ég kom við í Hyrnunni og keypti pizzu fyrir mig Björk og Báa. Það var yndislegt að koma á Hvanneyri þó það væri myrkur.. Veðrið var líka milt og gott. Við Björk fengum okkur rauðvínstár eftir matinn og kíktum svo á Önnu Guðrúnu og Björn og sátum hjá þeim til miðnættis. Það er alltaf jafn gaman að spjalla við þau. Við Björk röltum þá heim og sötruðum smá beilís og skelltum okkur svo á barinn... Við gengum framhjá Álfhólnum í myrkrinu á leiðinni... Ó ég sakna hússins... Við vorum nokkuð viss um að barinn væri tómur en þá var tveggja manna hljómsveit að spila... Steini og Olli.. bara hressir.. Slæðingur var af fólki á barnum og virkilega gaman að hitta alla aftur.. Eftir barinn þá fórum Ég, Björk, Sigga Júl og Þórunn heim til Siggu og horfðum á DVD með "Best off" Evróvision lögum... Já ég veit... frekar hallærislegt.. En við skemmtum okkur stórkostlega við að syngja og dansa "Diggy lú, diggy ley, life is going my way, when I am walking in my golden shooes!... Með Herrýs var það ekki?
Á sunnudagsmorgninum þá hitti ég loksins hana Heklu litlu en hún hafði verið sofnuð þegar ég kom kvöldið áður... Hún er nú meiri rúsínan.. Þvílíkur karakter.. farin að labba um allt en þegar ég fór úr landi þá var hún bara rétt byrjuð að stíga nokkur skref... Síðan fór ég í sund og lá vel og lengi í heita pottinum en sundlaugin í Borgarnesi er örugglega með bestu potta á landinu..
Þegar til Rvk var komið þá fórum við í bíltúr upp í Heiðmörk og svo í Mosfellsdalinn en ég ætlaði að reyna að ná á leigjendunum mínum þar... Tveir bílar voru í innkeyrslunni en enginn svaraði þegar ég bankaði.. Mér þótti heldur druslulegt þarna fyrir utan og ég held ég hafi örugglega heyrt í þremur hundum þarna inni... Búið er að mála forstofuna vínrauða en ég held samt að ég hafi gefið leyfi fyrir málun en bara gleymt að spyrja um lit.... Það er svolítið sorglegt hvað allt er í niðurníðslu þarna... leigjandinn er þó búinn að mála þakið og veröndina eins og um var samið.... Ég hugsa að ég reyni að selja þetta við fyrsta tækifæri þegar ég kem heim.. Ég bara er komin með nóg af leigjendavandamálum...
Í gærkvöldi þá sótti Valdi Kentuky kjúkling og við horfðum á Edduna saman. Mér finnst það alltaf jafn gaman þar sem ég þekki nú enn einhver nöfn þarna í bransanum.... Mér fannst frábært að Egill skyldi fá tvö verðlaun en ég hefði nú viljað sjá Dunu fara með eitthvað heim fyrir Veðramót en ég hef svo sem hvorki séð myndirnar hans Ragnars né Veðramót...
Í dag er Valdi fyrir austan en hann er að flytja fyrirlestur þar í kvöld. Ég var nú bara að hangsa í dag og fór í heimsókn til Brjáns, Karenar og Brynhildar sem er náttúrulega mesta dúlla í öllum heiminum... (Sjá myndir). Ég er líka búin að hanga á saumastofunni hjá Gerði og liggja í Árbæjarlauginni í tvo tíma.. næs.... Nú er ég í húsi pabba hans Valda í Árbænum en Reynir er í útlöndum. Húsið hér í Árbænum er svo yndislegt og hlýtt og notalegt en það er við hliðina á Elliðaánum og ég hef bara verið að virða fyrir mér endurnar synda framhjá en hér eru gluggar í hólf og gólf..
Í kvöld fer ég svo til Hildar Kristjáns og svo förum við Valdi "heim" til Malmö á morgun...
TVÖ NÝ ALBÚM...
Kveðjur úr Árbænum
Um bloggið
Guðrún og Valdi
Bloggvinir
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (10.6.): 2
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 9
- Frá upphafi: 294957
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 9
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.