10.11.2007 | 21:34
Komin heim á Frón
Jæjja við erum komin heim til Íslands. Yndislegt.. Veðrið svona milt og fallegt..
Við vöknuðum snemma í morgun, eiginlega allt of snemma. Við vorum komin á Central Station allt of snemma og fengum okkur bara morgunmat í rólegheitunum. Við vorum að hinkra eftir Rakel, guttunum og mömmu hennar Rakelar sem ætlaði að vera samferða okkur í fluginu heim.
Allt gekk að óskum og við vorum örugglega fyrst til að tékka inn og höfðum nægan tíma til alls.. Vopnaleitin var reyndar frekar fyndin þar sem Mamma hennar Rakelar var "böstuð" með míní kökukefli.... Það sást eitthvað dularfullt í röntgenmyndinni svo það þurfti að taka allt upp úr handtöskunni og það kom í ljós að dularfulli hluturinn var kökukefli með litlum járnpinna í gegn. Konan í tollinum og maðurinn á röntgentækinu hlógu vel og lengi að þessu.
Á flugvellinum hittum við hann Sigga Þór nýbakaðan master frá Hvanneyri...
Flugið var einfaldlega langt og leiðinlegt en við þurftum að fljúga miklu lengri leið vegna ókyrrðar í lofti þannig að flugið var 3 og hálfur tími í stað 2 og 50 mín... BORING.... Svo þarf maður að kaupa sér mogga og Sómasamloku um borð...
Við misstum af rútunni sem við áttum að taka í bæinn og þurftum að bíða í 20 mín eftir að næsta færi og í staðinn þá fengum við endurgreitt... Hehe... ekki málið... 2400 kall... munar um minna... Í rútunni var hann Teitur Þorkelsson gamall vinnufélagi min frá Stöð 2 og skólafélagi systra minna... Það var gaman að spjalla við hann en við höfum ekki hist almennilega í allt of langan tíma...
Nú er Valdi heima hjá Pabba sínum í Árbænum með börnunum en ég er uppi á Hvanneyri með Björk Harðar... Næs... ég fer svo á morgun að hitta þau öll...
Kveðjur frá Hvanneyri
Um bloggið
Guðrún og Valdi
Bloggvinir
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (10.6.): 1
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 8
- Frá upphafi: 294956
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 8
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
ææ Var flugið langt og leiðinlegt, sama rokið og tafði fyrir ykkur, varð til þess að ferðin mín tók bara 2 og hálfan tíma í stað 3 tíma. ..svona er að fara í rétta átt.. kveðja
Sigurður Þór Guðmundsson (IP-tala skráð) 12.11.2007 kl. 10:03
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.