5.11.2007 | 10:15
Trópí-félagið
Sunnudagurinn var mjög rólegur, eiginlega fór dagurinn bara í letilíf. Seinni hlutann þá fórum við Valdi upp í Burlov center og keyptum á hann buxur en á mig keyptum við kápu og toppa.
Um kvöldið þá fóru allir (nema ég) í mat til Rakelar en hún bauð upp á Elgsteik. Allir voru ánægðir með elginn og ég fékk að smakka hann þegar þau komu heim og hann var bara mjög góður. Ég komst ekki með í matarboðið þar sem ég varð að þvo STÓRÞVOTTA.. En ég hafði ekki þvegið í langan tíma vegna prófa og allir þvottatímar upppantaðir fram að þessu... Ég þvoði 7 vélar og á tímabili var ég búin að leggja undir mig 3 þurrkara af 4 mögulegum... Þegar Benni, Halla, Valdi og Gabríel Snær komu heim þá var bara horft á sjónvaprið og ég prjónaði svolítið. Svefnsófinn er svo æðislegur að nú geta allir legið flatir og horft á sjónvarpið án þess að það sé þröngt... Þetta er alger snilldar svefnsófi...
Valdi er farinn í fimm daga ferðalag á vegum skólans og kemur aftur á föstudaginn. Benni og Halla eru úti á bílnum að skoða sig um en ég er núna tekin til við að vinna aðeins í Greinasafni landbúnaðarins sem ég var að vinna í í sumar... Það tók nú allan morguninn að finna dótið, og komast aftur í gírinn og rifja upp hvað var í gangi með hvað.... En ég ætla að vinna í Greinasafninu alla þessa viku.
Næsta mánudag þá byrjar Block 2 í skólanum. Þá er ég skráð í einn áfanga sem lítur út fyrir að vera hrein snilld en hann heitir Tropical Botany og er um hitabeltisjurtir og kemur mikið inn á grasnytjar sem er á mínu áhugasviði. Þetta eru 10 dagar í fyrirlestra og hópverkefni en síðan verður farið til Gvatemala í þrjár vikur í janúar... Ekkert smá spennandi. Dýrleif og Linda voru skráðar í áfangann og ég frétti af þessu í gegnum Sigga Frigg og ég var alltaf með smá áhyggjur að mig vantaði ferðafélaga í herbergi og svoleiðis en þá bara skráði Hlynur Gauti sig í áfangann. Hrein SNILLD.. Nú er ég komin með fínan ferðafélaga en Valdi hefur mikla reynslu af að ferðast með Hlyn þar sem þeir voru herbergisfélagar í Lbhí ferðinni til Norðurlanda og hann gefur honum hæstu einkunn..... Auk þess er Hlynur búinn að panta allar bækurnar fyrir okkur á netinu og Dýrleif er búin að vera að vinna í að sækja um styrki fyrir ferðinni... Snilld.. það verður gaman að vera aðeins innan um Íslendinga og nú ætti kennslan að fara fram á ensku fyrir víst þar sem svo margir "útlendingar" eru í hópnum... En við Hlynur erum búin að ákveða að við fjögur erum þá augljóslega í "Trópí-Félaginu"... og það félag gengur út á það að æfa sig fyrir ferðina í að drekka Margarítur þar sem Gvatemala er svo nálægt Mexíkó... Hrein snilld..
Já varðandi heimferðina þá gleymdist víst að láta vita af tímasetningum. En við komum síðdegis á laugardaginn næsta. Ég fer líklega á Hvanneyri en Valdi verður í bænum og hann ætlar svo að hitta krakkana á sunnudaginn. Á sunnudagskvöldið kem ég í bæinn og Valdi fer svo austur á mánudagsmorgun. Ég eyði mánudeginum í útréttingar eða bara aftur á Hvanneyri vegna vinnunnar. Síðan sæki ég Valda á flugvöllin á þriðjudaginn og við förum beit út á Keflavíkurvöll.... .Þetta verður sum sé svolítið snúin ferð...
Kveðjur frá Malmö
Um bloggið
Guðrún og Valdi
Bloggvinir
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (10.6.): 1
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 8
- Frá upphafi: 294956
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 8
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Hæ og til hamingju með prófið
heyrðu sko ábyrgst að Hlynur er frábær ferðafélagi og það er líka gott að búa með honum ég öfunda ykkur ekkert smá að vera að fara þetta.
ég verð í Reykjavík um næstu helgi eigum við ekki að reyna að hittast??
kv. Guðbjörg
Guðbjörg Guðmundsdóttir, 5.11.2007 kl. 20:45
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.