Prófið búið...

Já prófið er búið...

Ég náði prófinu.... Íha... Ég var alveg gersamlega á taugum.. Þetta var svo mikið og svo erfitt.. Ég var eiginlega búin í gærkvöldi að flokka út það efni sem ég ætti raunverulegan séns í og leggja áherslu á það... Við áttum sko að draga efni og ég mátti víst draga tvö og velja á milli (af því ég er útlendingur).. En það boðar alltaf ólukku að fara í próf og stóla á heppni.... svo mætti ég í morgun aðeins of snemma og krakkarnir fóru inn einn af öðrum og fyrst kom Jenett út og hún hafði fengið einn flokk af plöntum sem ég var að vonast eftir.. svo fór Mikkel inn og hann fékk Burknana MÍNA... ARRRG.... svo fór Helle inn og hún fékk Samanburð á einkímblöðungum og tvímímblöðungum... Ég sem var alveg með það á hreinu... Ég veit ekki hvað þriðja stelpan fékk... en það hefur örugglega verið eitthvað sem ég vissi eitthvað um.... Jæjja þannig að ég bara fór inn klukkan tólf og þarna sátu 2 kennarar og einn prófdómari.. Djísus.. gæti þetta verið eitthvað meira stressandi... Þá sagði kennarinn að það hefði verið eitthvað klúður með efnið hennar Helle svo hún dró víst tvisvar.. Dö.. og ég fékk þá bara það eina sem eftir var... Og þar sem ég taldi aðstæður mínar vera svo gersamlega glataðar þá eiginlega bara fór ég að slaka á... Og smám saman bara náði ég að þekkja allar tegundirnar sem lagðar voru fyrir framan mig og greina þær og lýsa og útskýra og bla bla bla... Gat nefnt þær allar og det hele... Ég samt var enn bara að vona að ég hefði... Skriðið...... Svo fór ég fram á gang og beið í 10 mínútur og þá kom kennarinn út og sagði að ég hefði fengið 7 sem er brilljant.. Fyrir ofan sjö er 10 og svo 13 en staðið er 2 .... Bara ég og Mikkel náðum 7 en hinar stelpurnar voru með fjóra... Ég er svo ánægð... Það hefði verið frekar pínlegt fyrir verðandi grasafræðinginn að falla í grasafræðinni.... En samt ekki því þetta var allt á dönsku og mikið erfitt...

Jæjja nú eru Benni, Halla og Gabríel Snær komin til Svíþjóðar og nú ætlum við að túristast mikið um helgina...

Kveðjur frá Malmö


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Auðvitað náðiru að valta yfir danina í dönsku grasafræði prófi ;) ég vissi það! En ég bið að heilsa Héraðsbúum :* ég væri svo til í að vera með ykkur- en í staðin ætla ég að skoða fögru Uppsalaborg á hjólinu mínu (er ég ekki jákvæð) en í alvöru talað Uppsala er æði, þið verðið að koma í heimsókn sem fyrst, þetta er sú mynd sem maður hafði af sænskri borg, allt annað en köben, malmö eða gautaborg... btw þá nam og kenndi hinn virti grasafræðingur Linné (Karl von Linné sem maður lærði í menntó) hér í Uppsala og það snýst allt svona túristadót um hann en bara gaman af því.

Lilja (IP-tala skráð) 2.11.2007 kl. 16:25

2 identicon

Til hamingju með árangurinn.  Heyrð að Valdi væri á leiðinn til landsins.  Hvenær er það og hvað verður hann lengi?  Ég fer upp á Hvanneyri á sunnudagskvöldið og ég skal horfa að Álfhól.  Kveðja Steinunn

Steinunn (IP-tala skráð) 2.11.2007 kl. 19:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Guðrún og Valdi

Höfundur

Guðrún og Valdi
Guðrún og Valdi

Fyrir framan Álfhólinn á Hvanneyri..

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (11.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 9
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 9
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband