Er Valdi þarna hinumegin?

Próflesturinn er alveg að ganga frá mér... Geðheilsan farin norður og niður... Ósköp verð ég fegin þegar prófið er búið á morgun.. Staðið eða fall.. MÉR ER ALVEG SAMA... Get bara ekki lesið meira..

Benni og Halla koma í kvöld ásamt litla Gabríel Snæ sem er nú bara nokkurra mánaða. Við munum sum sé leika alvöru túrista um helgina og gera eitthvað skemmtilegt..

Valdi fór að passa hjá Sigga og Hildi í gær. Ég komst ekki með undir því yfirskini að ég væri að lesa undir próf (en var í raun að horfa á Grays Anatomy í sjónvarpinu hehe)... En allavega þá gekk það bara ljómandi vel hjá honum enda ekki við öðru að búast af þriggja barna föður..  En í morgun þá kom þessi dásamlega athugasemd við færsluna í fyrradag og ég vona að Sigga sé sama þótt ég bara setji hana hér inn í heilu lagi:

Bara að þakka fyrir lánið á honum Valda í gærkveldi.    En Stefán Pétur læddist að rúminu okkar í morgun og spurði mömmu sína ósköp lágt, "er Valdi þarna hinumegin?". Hann hefði alveg viljað hafa hann áfram.. Kærar kveðjur.

Þetta bara bjargaði deginum mér fannst þetta svo krúttlegt...

Og Guðbjörg... Auðvitað máttu gista hér hjá okkur... Í fína nýja svefnsófanum okkar... Sjálfsagt... En annars erum við að hugsa málið með hilluna... Við fengum bara alveg nóg af að bera hluti upp á þriðju hæð.... En Valda vantar hillu svo málið er í nefnd... Takk takk..

Jæjj Síðasti próflestrardagurinn... DUGLEG, DUGLEG, DUGLEG.... Je sjúr...

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

TIL HAMINGJU MEÐ AMMÆLIÐ ELSKU GUÐRÚN þó seint sé:)

 Var ekki Greys anatomy að fjalla um plöntur hehe

Halla (IP-tala skráð) 1.11.2007 kl. 14:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Guðrún og Valdi

Höfundur

Guðrún og Valdi
Guðrún og Valdi

Fyrir framan Álfhólinn á Hvanneyri..

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (11.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 9
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 9
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband