Fleiri grá hár og próflestur..

Takk fyrir allar afmæliskveðjurnar....

Já þá er maður orðinn 38 ára.. Valdi sá í alvöru fleiri grá hár hjá mér í morgun þegar við löbbuðum út í búð....  En ég held að þeim hafi fjölgað undanfarin ár vegna námsins og svo tekur líka oft á taugarnar að búa með Valda kalda.. hehe..

Afmælisdagurinn fór í próflestur en Valdi var duglegur að dekra við mig og gaf mér ákaflega praktíska afmælisgjöf: Sleif, spaða og svoleiðis dót sem vantaði í eldhúsið.... Já þetta árið var greinilega ákveðið að vera frekar hagsýn en rómantísk.... En hins vegar fékk ég fallegan blómvönd frá Valda sem kom að góðum notum í próflestrinum þegar ég fattaði að eitt blómið væri Gerbera og þá tók ég það og skoðaði í Lúpunni minni og potaði svolítið í það í þágu námsins. Eitthvað er blómið slappt í dag eftir meðferðina.... Svo fékk ég ljómandi gott lasagnja í kvöldmatinn...  Rakel, mamma hennar og guttarnir komu svo síðdegis með afmælisgjöf en frá þeim fékk ég teskeiðar (eitthvað sem vantaði sárlega á heimilið) og Jólahafur frá Ikea... Krúttleg ekta sænsk jólaskreyting sem maður verður að eiga þegar maður er í Sviþjóð yfir jólin... Svo fékk ég líka jólakerti frá mömmu hennar Rakelar...  Valdi og gestirnir fengu sér afmælisrúlluköku sem Valdi hafði keypt en ég fór út að trimma.. Hins vegar fékk ég alveg skelfilega verki í sköflunginn og hlussaðist um með miklum harmkvælum og dreif mig bara heim eftir 4 km... Er heldur bækluð í dag...

Valdi er að byrja á nýrri önn í skólanum og honum líst vel á byrjunina en það sem þau eru að læra núna er áætlanagerð í skógrækt. Það verður mikil verkefnavinna og þar á meðal eitt Gis verkefni og svo verða tvær vettvangsferðir... Nóg að gera..

Loksins fengum við sent kortið í digital sjónvarpið okkar svo Valdi tengdi allar 27 rásirnar... Þær eru aðallega þær sömu og við höfðum fyrir en við bætist eitthvað af Discovery stöðvum, tvær sportrásir og Animal Planet en þar er ég að vonast til að sjá þættina "Emergency vets" sem eru gríðarlega vinsælir í USA og eru svona reality TV á dýraspítala og tekið upp á Alameda East dýraspítalanum í Denver þar sem ég var í verknámi... Hinar stöðvarnar eru bara svona "Sam-Norrænt-hallæri" eins og ég kalla það en það eru einhverjir þættir þar sem allir eru ljóshærðir, svakalega hláturmildir og allir þættirnir minna á Samnorræna umræðuþáttinn með Eika Hauks fyrir Júróvision....  Síðan eru Svíar svo ginkeyptir fyrir raunveruleikaþáttum td: "Bondi sökar fru", "Ensam mamma sökar", "Stokholms next top model" og í alvöru þá eru þau enn með einhvern Bingó-Lottó þátt...

Jæjja best að halda áfram að lesa "Ordner með stivelsesholdig frohvide".... Spennó....

Kveðjur frá Malmö


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Bara að þakka fyrir lánið á honum Valda í gærkveldi.    En Stefán Pétur læddist að rúminu okkar í morgun og spurði mömmu sína ósköp lágt, "er Valdi þarna hinumegin?". Hann hefði alveg viljað hafa hann áfram.. Kærar kveðjur

Sigurður Þór Guðmundsson (IP-tala skráð) 1.11.2007 kl. 08:16

2 identicon

Hæ og til hamingju með afmælið Guðrún  jú ég kannast við það gráu hárunum fjölgar ansi hratt. ég verð líklega bráðum ljóshærð. he he.

en þetta með hilluna þá máttu bara eiga hana því ég kem ekki til með að flytja hana heim. þetta er svona hvít IKEA hilla og er ekki sérlega verðmæt. þú mátt líka hirða sæng og rúmföt sem eru líka hjá Hildi. hún verður örugglega fegin að losna við þetta. ég fæ kannski bara gistingu hjá ykkur í staðinn um miðjan des. (það hlaut eitthvað að haga á spítunni) he heh

Guðbjörg (IP-tala skráð) 1.11.2007 kl. 09:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Guðrún og Valdi

Höfundur

Guðrún og Valdi
Guðrún og Valdi

Fyrir framan Álfhólinn á Hvanneyri..

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (11.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 9
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 9
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband