Afmæliskveðjur...

Til hamingju með afmælið Gerður, Hildur og Dóri í Osló... Og líka Bjössi á Reyðarfirði sem átti afmæli í gær...

Það er stórafmæli hjá Dóra en hann verður fertugur kallinn... Í gegnum tíðina þá var oft sú hefð að Dóri bara byði sínum gestum í afmælið okkar systra... Þá slapp hann við að halda upp á sitt... Eitt árið þá komu nokkrir prúðbúnir gestir sem við þekktum ekki og bönkuðu upp á í Logalandinu og kynntu sig sem gestirnir hans Dóra... Fínt mál.. En Dóri bara var alls ekki kominn.... Og ekki mætti Dóri fyrr en á Miðnætti... Þá höfðu gestirnir fengið að borða og skemmt sér ágætlega held ég en voru frekar kleinulegir fram eftir kvöldi....  Annars stendur til að heimsækja Dóra og Helle fyrir jól til Osló og heimsækja líka alla sem við þekkjum í Ási...

Þessi helgi var eiginlega alveg tíðindalaus.. Valdi fór út að hjóla í gær og hjólaði út um alla borg, endaði í einhverju inaðarhverfi og svo á Central station. Hann er alveg að kynnast borginni ljómandi vel svona hjólandi. Ég fór hins vegar út að trimma og hljóp 4 hringi í garðinum (hljóp=lufsaðist) en ástandið á sköflungnum og náranum er betra þar sem ég hvíldi í tvo daga.

Elín .... svarið við spurningunni hvort kílóin séu ekki að renna af mér er nei... Sástu ekki myndina af norska jólanamminu.............

Helgin fór alveg í próflestur hjá mér.. En þetta gengur án gríns hægt og illa.. Ég þyrfti allavega mánuð í viðbót því bókin er á dönsku... Ég er ekki viss um að ég nái að klára að lesa námsefnið fyrir prófið.. Svo er þetta svo ruglingslegt.. Þetta eru lýsingar á plöntufjölskyldum og lýsingarnar eru einhvern veginn svona: tré, runni, klifurtré og stundum jurtir, epi-, hypo- og stundum perigyn... Blómin 5 deild en geta verið færri vegna skerðingar, fræflarnir 5-15, Fræið ber, hneta eða hýðisaldin... Hummm... takk fyrir þessa lýsingu.. þetta útilokar EKKI NEITT....  Svo kemur alltaf svona varnagli eftir hverja fjölskylduflokkun.. Sko.. þessi ætt er stundum flokkuð með þessum og ætti eiginlega kannski ekki að vera í þessum flokk heldur einhverjum öðrum.. Ég held þessir grasafræðingar séu bara algerlega að steypa þegar þeir eru að flokka þetta niður...  Ég vil bara flokka þetta eftir tré, runni, kaktus,  jurt.. Í fjóra flokka og kalla það gott...... Og hana nú.....

Jæjja best að halda áfram með Dipsacales sem er fjölskylda undir Helkronede ordner... Arrrgggg....

Kveðjur frá rigningunni í Malmö


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hún á afmæli í dag, hún á afmæli í dag...o.s.fr. En hjartanlega til hamingju með dagin Guðrún. Vonandi færðu eitthvað gott að borða frá karlinum... eigðu góðan dag...

Elin (IP-tala skráð) 29.10.2007 kl. 13:24

2 identicon

Hæ hæ,

Til hamingju með afmælið... Njóttu dagsins og eyddu honum í eitthvað skemtilegt, þ.e.a.s. annað en plöntur eða trimm.

kveðja frá fjölskyldunni á Vífilsgötu

Brjánn, Karen og Brynhildur Þórey (IP-tala skráð) 29.10.2007 kl. 15:27

3 identicon

Til lukku med daginn, eg aetladi ad muna eftir honum og fyrir tilviljun for eg ad vafra her i skolanum a netinu- svo mer tokst ad kvitta a rettum degi ;)

Annars er bara fint ad fretta, skemmtilegur kurs, finir krakkar og allt annar baejarbragur ef eg a ad segja satt. Hlakka bara endalaust til ad fa ibudina og skoda alla finu göngustigana...

en eigdu nu godan dag :*

Lilja (IP-tala skráð) 29.10.2007 kl. 17:56

4 identicon

Til hamingju með afmælið Guðrún og systur hennar.  Vona að Valdi hafi gefið þér eitthvað gott að borða og einhverja fallega gjöf (hitablásara kannski) nei smá grín.  Vona að þið hafið það sem allra best.  Hér er kominn smá snjóföl á göturnar og hitinn er um frostmark og aðeins meira og það er að koma lægð yfir landið með mikilli úrkomu og þá snjór líklega aðallega í því.  Kveðja af klakanu  til ykkar og Rakelar.  Steinunn og co

Steinunn (IP-tala skráð) 29.10.2007 kl. 18:26

5 identicon

Til hamingju með afmælið Guðrún............Grattis på födelsedagen!!!

Kveðjur frá Lomma

Matthildur (IP-tala skráð) 29.10.2007 kl. 20:15

6 identicon

hæ hæ og Gratulerer 

til hamingju með daginn Guðrún, vonandi dúllaði Valdi við þig í dag.

Heyrumst

Berglind (IP-tala skráð) 29.10.2007 kl. 21:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Guðrún og Valdi

Höfundur

Guðrún og Valdi
Guðrún og Valdi

Fyrir framan Álfhólinn á Hvanneyri..

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (11.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 9
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 9
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband