27.10.2007 | 09:00
Kveðjupartý..
Nýtt albúm.
Það er verið að selja lambakjöt af Hesti. Sagði ég við Valda í gær.. Það var ekki fyrr en Valdi fór að hlæja að ég fattaði að það var eitthvað skrýtið við þessa setningu.. En fyrir þá sem eru ekki Hvanneyringar þá er Hestur rannsóknarbú í sauðfjárrækt og það var verið að auglýsa skrokka þaðan til sölu á starfsmannanetinu í gær..
Valdi fór í prófið sitt í gær og gekk bara nokkuð vel telur hann. Enn er verið að taka á svindlmálum hjá nemendum en gæslan var talsvert öflugri núna en á síðustu prófum því ákveðnar þjóðir virðast bara telja það eðlilegt að svinda. Í upphafi tímans var haldin löng ræða um hvað væri bannað og meðal annars er bannað að vera með GSM síma í prófi "Dö". Og svo hringdi síminn hjá einum nemanda sem svaraði og fór bara að kjafta. Honum var vísað út með det samme og varð alveg brjálaður.. Kom aftur inn í prófið og var ekki sáttur.. Fór svo inn í næsta herbergi þar sem líka var próf í gangi og vildi ræða við yfirsetumanneskjuna þar sem henti honum út.... Já það eru mismunandi hefðir í mismunandi löndum en sumt hefði maður nú haldið að væri "Common sence"..
Ég var alveg orðin steikt í próflestri enda gengur þetta hægt og illa hjá mér svo við Valdi fórum í Burlov Center að hitta Lilju og kaupa í pizzur en við ætluðum að hittast nokkur um kvöldið til að kveðja hana því hún er að flytja til Uppsala. Ég fór líka í íþróttabúð og keypti mér trimmbuxur, svona hallæris þykkar joggingbuxur með teygju að neðan.. Keypti líka þunnan síðerma trimmbol og líka vindjakka.. Ég keypti svo lyklakippu til að festa lyklana mína við mig þegar ég hleyp og svo litla dýnu til að gera magaæfingar... Ég er eiginlega gáttuð á hvað íþróttaföt geta verið ódýr hér miðað við heima.. Á Íslandi þá átti ég sömu ömurlegu skóna í 10 ár því ég tímdi ekki að kaupa nýja.. Hér kostar þetta bara ekki neitt... En það er eins gott að ég haldi áfram þessu trimmstandi þar sem ég er búin að græja mig svo vel upp með Ipod, skrefamæli, lóð, föt og fleira.. Það væri heldur hallærislegt að gefast upp núna..
Eftir verslunarferð í Burlov Center þá fórum við Valdi í Sopstationen því það vantar enn skrifborð fyrir Valda. En ótrúlegt en satt það var ekki eitt skrifborð til sölu þarna.. Skrýtið því það hefur alltaf verið nóg af þeim.. Það var reyndar hægt að kaupa svona gamaldags "skóladesk" mjótt og hátt sem maður opnar og geymir eplið sitt í... En líklega ekki hentugt.. hehe.. Hins vegar datt ég niður á 10 kökudiska og 5 kaffibolla í sixtís stíl, brúnt sem ég féll alveg fyrir.. Ég þurfti að suða mikið í Valda að fá að kaupa þetta því ég var víst búin að lofa að kaupa ekki meira leirtau... En þetta var bara svo flott. (Sjá myndaalbúm)
Um kvöldið komu Hildur, Lilja, Matthildur og Rakel í Pizzur til okkar. Ég verð bara að segja að þetta voru með betri pizzum sem ég hef gert.. Þær voru bara fantagóðar þó ég segi sjálf frá. Þrátt fyrir fáa gesti þá náðum við að hafa stofupartý og eldhúpartý í gangi nær allt kvöldið... Íslensk hallæristónlist var spiluð úr tölvunni svo sem "Til hamingju Ísland og Sódóma"... Þetta var virkilega næs.. En við erum að missa svo marga Íslendinga heim um jólin. Eftir áramót þá er það bara Rakel sem er eftir hér með guttana og svo við. En á mánudaginn þá fer ég með Hildi að hitta einhverjar konur sem búa í Lundi.. Kannski kynnist maður einhverjum þar.
ATH: Á Iceland express eru frábær tilboð í gangi til Köben... Held það sé bókunartími núna.. Ferðatími í nóv.. Endilega ef einhver vill koma í heimsókn.. En Benni og Halla verða í viku í byrjun nóv svo þá er svefnbeddinn upptekinn...
Jæjja þá er það meiri próflestur en ég er orðin svo steikt að ég held ég muni ekki þekkja muninn á Kaktus og birki í prófinu...
Kveðjur frá Malmö
Um bloggið
Guðrún og Valdi
Bloggvinir
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (11.6.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 9
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 9
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Voðalegur dugnaður í þér GB...lóð og alles. Kílóin hljóta að hrynja af þér, hvað eru mörg farin??
Elin (IP-tala skráð) 27.10.2007 kl. 12:55
Gaman að heyra frá ykkur. Fámenn íslenskt partý hljóta að vera mjög fín. Hafið það gott álfar. Kveðja María Guðbjörg
María Guðbjörg (IP-tala skráð) 28.10.2007 kl. 14:29
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.