Próflestur, próflestur, próflestur..

Já það er fátt til tíðinda frá Malmö þessa dagana.. Við erum bæði í endalausum próflestri. Valdi fer í próf á morgun en ég eftir viku og ég er alveg komin í PANIKK.... Þetta er á dönsku og svo MIKIÐ... og svo FLÓKIÐ...

Annars erum við komin í skype samband og mitt skype nafn er gudrun.bjarnadottir1 og Valda er valdimar reynisson, svo nú þurfa endilega allir að Skypa sig og spjalla við okkur.. Ég keypti líka inneign á skype svo ég get hringt í heimasíma á Íslandi fyrir "kúk og kanil"....  Ég er búin að ofsækja systur mínar í dag eftir að ég fann út úr þessu Skype dóti.. Og Valdi talaði í einn og hálfan tíma við krakkana í gær.. Hrein snilld...

Ég fór út að trimma í dag og það var yndislegt.. En hins vegar er ég greinilega mjög slów svona fyrst í stað þar sem ég átti í mestu vandræðum með að taka fram úr gangandi konu.. hehe... en þetta kemur... Annars er ég farin að finna fyrir svolítilli beinhimnubólgu frama á sköflungnum og vona bara innilega að það hverfi.. En nýju fínu loftpúðaskórnir mínir eiga að koma í veg fyrir svoleiðis vesen... Ég keypti mér sko fína hlaupaskó í Sport-outlet búð sem er hér rétt hjá.. þar er allt á hálfvirði eða meira og fullt af flottum vörum... og líka ljótum... hehe.. Þar keypti Valdi sér fína gönguskól um daginn ódýrt en kostuðu áður 14.000.

Muniði eftir kisu litlu sem var heima hjá okkur í nokkra mánuði á Álfhólnum. Hún gekk bara undir nafninu Kisa.. Allavega þá varð hún fyrir bíl um daginn á Bústaðaveginum og dó.. Einar var búinn að koma henni fyrir hjá mömmu sinni sem býr við Bústaðaveg.

Bestu kveðjur frá Malmö


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Knús í próflesturinn og gangi ykkur vel!

Þóra og Örvar 

Þóra og Örvar (IP-tala skráð) 26.10.2007 kl. 19:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Guðrún og Valdi

Höfundur

Guðrún og Valdi
Guðrún og Valdi

Fyrir framan Álfhólinn á Hvanneyri..

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (11.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 9
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 9
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband