Próflestur og trimm...

Síðustu dagar hafa farið í próflestur og letilíf...

NÝTT ALBÚM: NÁMSFERÐ TIL ASA 

Valdi snillingur... lærði og lærði fyrir próf sem var í gær en ekki í dag eins og hann hélt svo hann missti af prófinu "Bjáni... "  Hann talaði við kennarana og það verður upptökupróf.. Nú er hann að læra fyrir próf sem er á föstudaginn og hann er búinn að "dobbletékka" það...

Ég fór í gær til Kaupmannahafnar til að labba í gegnum Botanisk gardens með tveim úr bekknum til að undirbúa próf.. En það var eins og ég hélt.. Þær töluðu bara dönsku og ég græddi ekkert á þessu.. Ég dreif mig bara til baka og ætla sjálf í næstu viku að skrölta um garðinn..

Síðustu tvo daga hef ég náð að skrölta út að trimma en Kirseberggarðurinn er hrein snilld til að trimma í... Ég er í dag heldur bækluð, teygð og toguð.. En ég hefði átt að hvíla mig í gær en þegar ég byrja að trimma verð ég svo manísk að ég gat ekki sleppt úr degi... En í dag ætla ég ekkert að trimma svo ég hafi heilsu til að fara út á morgun... Trimm er kannski ýkur yfir þetta athæfi mitt en mestmegnis er ég að labba og trimma til skiptis til að byrja með.. Vonandi eykst hraðinn og þolið ef ég held þessu áfram.

Í dag fundum við loksins endurvinnslusvæðið fyrir húseignina. Snilldar gámasvæði þar sem allt er flokkað. Svona vil ég sjá á Hvanneyri í framtíðinni.. En ég skal taka myndir og setja inn við tækifæri.. (Sérstaklega fyrir Björk formann umhverfisnefndar Borgarbyggðar.....)

Valdi er orðinn mikill hjólafíkill en hann fór þrisvar sinnum út að hjóla í gær... Í skólann, niður í bæ og svo til Rakelar. Hann fjárfesti í vatnsheldum bakpoka.

Af hverju kommenteraði enginn á fínu rapphænuna? Okkur Valda fannst hún svo flott með skupluna sína og hálsfestina... fannst engum þetta fyndið? 

Kveðjur frá Malmö


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Jú geðveik hæna... En sérstaklega fannst mér fyndið það sem þú, GB, skrifaði undir myndina af "bilnum" þar sem vetrardekkin voru fyrir aftan, upp við vegg

Elin (IP-tala skráð) 24.10.2007 kl. 19:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Guðrún og Valdi

Höfundur

Guðrún og Valdi
Guðrún og Valdi

Fyrir framan Álfhólinn á Hvanneyri..

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (11.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 9
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 9
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband