Rapphænur og Flatkanínur

Steinunn.. Það var sko planið að Valdi færi heim einu sinni fyrir áramót á milli anna en það eru bara engar pásur, þetta er bein keyrsla. Börnin koma til okkar 25. desember og verða í tíu daga.

Annars var þetta rólegur dagur í dag.. Skutumst aðeins upp í Burlov center en vorum annars bara heima. Rakel kom í kaffi en hún var að læra á bókasafninu hér rétt hjá..  Ég hafði gert tilraun með að búa til "Smack" sem er norskt jólanammi sem er í raun bara Buggles með súkkulaðihjúp... Þetta endaði nú ekki í neinum hjúp hjá mér heldur bara dippi... Bökunarsúkkulaðið hér er sko ekki eins gott og íslenska suðusúkkulaðið. En mér fannst þetta ljómandi gott en Valdi fúlsar við þessu.. Valdi fór í hjólatúr og endaði á mörkum Rósengardhverfisins en það er "Harlemið" í Malmö... Hann fékk á tilfinningunni að þarna við "landamærin" biðu dópdílerarnir eftir viðskiptavinum.. því þar héngu dularfullir guttar og gerðu "ekki neitt"......

Annars gleymdum við að segja frá Rapphænunum sem við sáum í dýragarðinum í gær.. Það er einhver tegund af norrænum hænum sem heita  í alvöru Rapphænur.. Okkur fannst þetta heldur fyndið og sáum fyrir okkur rappandi hænur..  Í dag er nóg að nefna rapphænurnar og við Valdi rifnum úr hlátri....   En fyrst við erum byrjuð að tala um dýrategundir þá vill Valdi meina að hann hafi uppgötvað nýtt afbrigði af kaninum en það eru svokallaðar "flatkanínur" sem virðast halda sig í vegkönntum  og jafnvel á miðjum vegum og fara ekki fet... Einnig hafa sést dæmi um aðrar tegundir flatdýra svo sem "Flatíkornar"....  en oft er erfitt að greina tegundirnar...  En hér er mikið kanínuvandamál og hafa nokkrar reynt að fyrirfara sér á bílnum hans Valda...

En svona sér Valdi fyrir sér alvöru norræna rapphænu.......

Kveðjur frá Malmö

 Rapphæna...

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Guðrún og Valdi

Höfundur

Guðrún og Valdi
Guðrún og Valdi

Fyrir framan Álfhólinn á Hvanneyri..

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (11.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 9
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 9
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband