Skåne djurpark - túristadagur

NÝTT ALBÚM...

Jæjja í dag tókum við því létt og lékum túrista. Við fórum ásamt Rakel, mömmu hennar, guttunum og Lilju í Skåne Djurpark sem er ca klst fyrir norðaustan Malmö eða á Mið-Skáni. Þessi dýraparkur er rétt fyrir utan bæ sem heitir Höör en hann leggur áherslu á dýr Norðursins svo þarna voru engin Sebradýr eða slíkt. Garðurin var virkilega vistlegur og virtist fara ljómandi vel um öll dýrin en þarna voru elgar, vísindar, uxar, villisvín, uglur, hænur, úlfar, ernir, kindur, bambar, sauðnaut og fleiri dýr. Við vorum í heila fjóra tíma að labba þarna um í yndislegu haustveðri og haustlitum. Við tókum með okkur nesti og borðuðum á bekk í garðinum en mamma hennar Rakelar hafði búið til pönnukökur og skúffuköku en það var ljúft að fá svona íslenskt bakkelsi.

Sveitin í kringum dýragarðinn var einstaklega falleg. Svona ekta sænsk eins og maður ímyndar sér.. Kósí tmburhús, rauð eða pastelgul með fallegum trjágarði en þetta var alveg ævintýralega fallegt í haustlitunum.

Kvöldið fór í letilíf í sófanum með fjarstýringuna og snakk...

Kveðjur frá Malmö


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Gott að þið getið leikið túrista svona á milli annan hjá ykkur í skólanum.  Ætlar Valdi eitthvað að koma heim til Sunnu, Jakobs og Lindu fyrir jólin? Pabbi og Sigríður eru að fara til Berlínar á morgun í viku og koma svo í viku heim og eru svo farinn til Tenerífe með Rílax genginu í 2 vikur.  'Eg sjálf ætla ekki að koma út fyrr en eftir áramót.  Kveðja úr rigningunni Steinunn

Steinunn (IP-tala skráð) 21.10.2007 kl. 18:25

2 identicon

Gleymdi að senda kveðjur til Rakelar og stákanna. Frábært að mamma hennar hafi  komið út til hennar.   Kveðja Steinunn

Steinunn (IP-tala skráð) 21.10.2007 kl. 18:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Guðrún og Valdi

Höfundur

Guðrún og Valdi
Guðrún og Valdi

Fyrir framan Álfhólinn á Hvanneyri..

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (11.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 9
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 9
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband