NETTENGING Í HÖFN...

Nýtt albúm.. Ok.. ég lofa.. Þetta er síðasta sveppaalbúmið..

Nú erum við Valdi bæði komin heim úr vettvangsferðunum okkar.. Sveppaferðin mín var æðisleg og ég get svo svarið það að ég er farin að sjá eftir að hafa ekki bara tekið master í sveppafræði... Þetta var svo gaman. En það versta er að það er enginn sveppakúrs kenndur neins staðar.. við KU hefur kúrsinn Svamperiget ekki verið kenndur í mörg ár og sami kúrs við HÍ ekki heldur.. Jæjja þetta verður bara hobbý hjá mér í staðin..

Í gær voru Valdi og Rakel í rannsóknarskóginum í Asa í Smálöndunum. Þar skoðuðu þau ýmiskonar aðferðir við "regeneration" endurplöntun eftir rjóðurfellingu. Þau skoðuðu líka aðferðir við "precommercial thinning" (forgrisjun) og mismunandi rannsóknir á því. Svo fóru þau Rakel í Lammhult sem er næsti bær við gistiheimilið þar sem þau gistu, en þar fóru þau í búð og fóru svo í bíltúr um fallega sveitina.

Fyrir heimferð í dag skoðuðu þau mismunandi grisjunaraðferðir við greni og furu.  Í Lönsboda skoðuðu þau síðan svartbergsnámu en eftir það var haldið heim á leið.

Valda tókst svo að nettengja okkur þegar heim var komið en ekki tókst okkur að fá þessar 27 sjónvarpsstöðvar til að virka þar sem beðið var um lykilorð sem við vorum ekki með.. Þjónustusíminn var náttúrulega snilld hjá Telia eða þannig!!! En maður á að segja á sænsku hvað maður vill í stað þess að velja einn eða tvo. Td. Internet, Sjónvarpsvandamál.. eitthvað svoleiðis.. En dö.. Ég skil ekki og tala ekki sænsku... Þegar ég fæ símsvara á sænsku með ýttu á  einn eða tvo og allt það þá bara grísa ég út í loftið en ég komst ekki í gegnum þennan þjónustusíma.. Þannig að við verðum bara að skella okkur í búðina á morgun..  Ég eyddi fyrrihluta dags í lærdóm og stúss en svo var þvottatími hjá mér síðdegis.. Það fór nú ekki betur en svo að ég gleymdi að taka síðasta þurrkaralóadið út fyrir níu um kvöldið svo þvotturinn læstist inni.. Snilld... Held líka að ég hafi lesið það í húsreglunum að þvotturinn verði gerður upptækur og eitthvað flókið að fá hann til baka.. Svíar eru svo óskaplega regluglaðir.. og sumar reglurnar ekki alveg að meika sens....

Lilja kíkti í heimsókn um kvöldið til að kíkja almennilega á íbúðina en hún hefur ekki komið síðan hún flutti með okkur..

Annars er ég komin í hálfs mánaðar próflestur og Valdi er líka í próflestri en hann fer í tvö próf í næstu viku.  Fyrstu masterseiningarnar eru í höfn með sveppakúrsinum en honum lauk formlega með vettvangsferðinni. Myndir frá ferðinni hans Valda koma síðan inn á næstu dögum.

Kveðjur frá Malmö


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Guðrún og Valdi

Höfundur

Guðrún og Valdi
Guðrún og Valdi

Fyrir framan Álfhólinn á Hvanneyri..

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (11.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 9
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 9
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband