17.10.2007 | 17:05
Meiri sveppir og bambar..
Nýtt myndaalbúm.
Jæjja þá er enn einn sveppadagurinn að kvöldi kominn eða þannig.. Ég á reyndar kvöldtímann eftir frá 19-22.... Í dag var mígandi rigning en það aftraði okkur ekki frá því að sækja sveppina út í skóg.. Ég var heppin með sveppagrúbbu í dag en ég er með mjög skemmtilega sveppi sem vaxa á trjám og eru eins og risastórir fastir kubbar.. Ég þurfti að nota sög til að ná þeim niður... Kúl... Hápunktur dagsins í gær var hins vegar að sjá "stinksvamp" sem lítur út eins og míní-typpi og hann lyktar alveg ógeðslega. En í dag fannst annar sveppur sem lyktaði eins og úldinn fiskur (svipað og hinn).. Og hann Christian vogaði sér að setja sveppinn í hettuna hjá vinkonu sinni henni Marit... Ég var að spjalla við Marit og lyktaði út í loftið og spurði hvort þau hefðu fundið Stinksvamp.. Nei.. en einhver illa lyktandi sveppur var í nágrenninu.. við leituðum í kringum okkur og Christian bara hljó.. Ojbarasta.. Þvílíkir vinir.. hehe... Þetta er örugglega annarlegur sveppafræðingahúmor hehe..
Brenninetlurnar létu mig alveg í friði í dag. Ó já Óskar Óðinn.. ég skil alveg Brenninetlufóbíuna því þetta er sárt....
Valdi eyddi deginum í rannsóknarskóginum í Asa. Þar skoðuðu þau til dæmis ranabjölluskemmdir og svo skoðuðu þau mismunandi aðferðir við nýgróðursetningu sem miða að vörnum gegn ranabjöllu en ranabjallan er hættulegasta meindýrið í svona heilfellingum. Eftir hádegið skoðuðu þau áburðartilraun og líffræðilegan fjölbreytileika í Asa. Valdi og Rakel voru búin klukkan fjögur og fóru þá að túristast. Þau keyrðu í kringum Asavatnið og stoppuðu á nokkrum stöðum en þau fundu meðal annars kirkju í skógarrjóðri sem var svona útikirkja sem var vígð 1994, með altari, sætum, krossi og öllu saman. Einhverjir sveitungar höfðu búið þetta til. Rakel og Valdi sáu fullt af dádýrum en ekki náðust myndir af slíkum svo þau eru ein til frásagnar..... Þau telja sig líka hafa heyrt í elg (je sjúr..) en ekki séð hann.
Já Steinunn... það fer að líða að afmæli okkar systra en það er 29. október... Þá verð ég á kafi í próflestri og vona bara að kallinn gefi mér eitthvað gott að borða....
Bestu kveðjur frá Danmörku
Um bloggið
Guðrún og Valdi
Bloggvinir
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (12.6.): 5
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 13
- Frá upphafi: 294963
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 9
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Sæl og blessuð
Ég er í verkefnavinnu og því auðvitað slæðist ég inn á bloggið þitt (Allt betra en að vinna verkefnið). Það er gaman að lesa hvað ykkur gengur vel með sveppina og elgina þarna ytra. Og ég sé að það er ekki sama rokið þarna og hérna. Bið að heilsa Valda og hafið það gott
Mattý
Matthildur Sigurjónsdóttir (IP-tala skráð) 19.10.2007 kl. 11:55
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.