16.10.2007 | 19:59
Kattholt og meiri brenninetlur..
NÝTT ALBÚM
Bévítans brenninetlurnar ná mér alltaf.... Nú sagði einn kennarinn mér að leita að einhverjum svepp á stilkunum á gömlum brenninetlum.. Ég passaði mig vel þar til ég hnaut eitthvað til og stakk hendinni beint utan í eina... Arrggggg..... VONT......
Annars var þetta fínn dagur. Fyrir hádegið sveppatínsla og eftir hádegið sveppagreining en ég fjárfesti í sveppagreiningarforriti frá honum Thomas kennara sem er algert sveppaséní.. Það er varla sú bók hér á borðunum um sveppi Norðurlandanna þar sem hann er ekki einn af höfundunum.. En allavega þá bjó hann til þetta sveppagreiningarforrit sem er skemmtilegt leikfang í sveppagreiningunni.. Ég náði samt bara að greina 5 sveppi í dag... En ég lærði mikið á þessu fikti.. Hins vegar er stelpan við hliðna á mér frá Svíþjóð og hún er algert sveppanörd.. Hún greindi 35 sveppi í dag... Humm.. þarf að taka mig á.... Nei nei.. ég er ekki í sveppafræði heldur grasafræði svo ég er með afsökun... Hún er í doktorsnámi í sveppum.... kúl....
Valdi átti líka skemmtilegan dag í Svíþjóð en í dag fóru þau til Nörrakvill sem er Þjóðgarður og rétt áður en þau komu þangað sá þau elstu eik í Svíþjóð sem 950 ára gömul (ég held að einhver hafi verið að plata þau!!!) Þau í gönguferð um þjóðgarðinn sem ekki hefur verið átt við síðan hann var friðaður en það setur óneitanlega svolítinn svip á umhverfið. Þegar þessu var lokið fóru Rakel, Valdi og Pille frá Eistlandi í áttina að Vinnerby þar sem Astrid Lindgrenworld er staðsett en það er safn um bækurnar hennar og hana sjálfa, en það var lokað og þegar þau voru að fara til baka þá sáu þau skilti sem benti á Ólátagarðinn og þangað fóru þau og sáu Ólátagarðinn sem bækurnar um börnin í ólátagarði eru skrifaðar um.. Eftir það fóru þau í Kattholt þar sem Emil bjó en þegar þau keyrðu þangað fóru þau í gegnum Maríannelund þar sem læknirinn bjó sem tók súpuskápina af hausnum á Emil þear hann festi hana þar.. Ógleymanlegt atriði í sjónvarpssögunni...
Annars fattaði ég það í dag að það hefði verið skipt um borgarstjóra í Rvk fyrir helgi.. Ó my god.. maður dettur úr nettengingu í nokkra daga og verður bara alveg out.. Mér líst þó heldur betur á hann Dag heldur en Vilhjálm. En ansi er hann þó ungur.. (eða er ég bara orðin svona gömul?) Hins vegar fær hann alltaf stig fyrir algerlega ógleymanlegt söngatriði ásamt vinum sínum í brúðkaupi Halla og Röggu þar sem konur staðarins bókstaflega grétu úr hlátri og enduðu í hóp inni á kvk-klósti að endurgera meikuppið eftir það atriði..
Kveðjur frá Soro
Um bloggið
Guðrún og Valdi
Bloggvinir
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (12.6.): 5
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 13
- Frá upphafi: 294963
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 9
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Steinunn (IP-tala skráð) 16.10.2007 kl. 21:54
Hæ Guðrún og takk fyrir síðast, við mæðgur erum nú komnar heim í frostið á Fróni og ferðin heim gekk vel. Flottar myndir :)
Karen (IP-tala skráð) 17.10.2007 kl. 11:54
Skemmtileg færsla. En þú ert ekki sú eina sem hræðist brenninetlur því hann Óskar Óðinn hreinlega hatar þær og allt sem var grænt í sumar og ekki var tré eða gras gat verið brenninetla og þá snerti hann það ekki, það var ekki sjaldan í sumar sem maður heyrði ,,passaðu þig mamma þetta gæti verið brenninetla" eða ,,er þetta brenninetla" bara til að vera viss.
En hafið það gott bið að heilsa Rakel og co
kossar og knús frá Ås
Berglind (IP-tala skráð) 17.10.2007 kl. 12:26
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.