Brenninetla og vettvangsferðir...

Já nú erum við Valdi bæði í vettvangsferðum á vegum skólanna. Ég er í Soro í Danmörku en Valdi einhvers staðar í þriggja tíma fjarlægð frá Malmö... Hann og Rakel óku þangað síðdegis. Hann segir að þar sé alveg frábær skógur og honum líst ljómandi vel á aðstæður á gistiheimilinu þar sem þau eru. Ég er hins vegar á gömlum uppgerðum sveitabæ sem hefur verið breytt í svepparaskoðunarmiðtöð. Sveitabærinn er úti í miðjum skógi og hér eru sveppir út um allt. Við byrjuðum daginn á að týna sveppi fram til hádegis og svo eftir hádegið og alveg til tíu um kvöldið þá var verið að greina sveppina... Og eins og kennararnir segja  "GREINA" ekki "GISKA". Hér þarf a fara eftir flóknum sveppagreiningarlykli með víðsjá og stundum þarf að nota smásjá til að sjá lögun gróanna og sveppþráðanna.. Mér tókst sum sé frá 13.00 og fram undir kvöldmat að greina heila 7 sveppi... Maður hefði nú verið fljótari að bera saman myndir í bók en það er ekki "lögleg" greining heldur bara ágiskun... Þetta var allavega ofboðslega áhugavert.

Í morgun tókst mér að þvælast utan í brenninetlu en þær eru hér út um allt... Það er sárt.. Ég er enn að drepast í hendinni. Maður er bara ekki vanur að þurfa að passa sig á þessari plöntu... Ekki það að ég þekkti hana ekki.. ég bara kveikti ekki á perunni að hún væri svona hættuleg.. .

Já Steinunn það er von þú spyrjir um verðið á flatskjánum.. En hann kostaði 60 þúsund.. við áttum 20 þúsund til góða þar sem við fluttum svo seint inn í nýju íbúðina.. Síðan var smá tekið af debetkorti Valda og smá af mínu og smá sett á sameiginlea kortið.. Þessu var svona nurlað saman til að við  fengjum ekki stóran reikning seinna... Þett hafðist.. Við ætluðum okkur í raun ekki að kaupa svona alvöru sjónvarp en bara tilhugsunin um að bera "hlunk" upp á þriðju hæð og reyna svo að selja hann bara til að spara smá pening.. Var bara ekki alveg að gera sig....

Jæjja ég set inn myndir seinna.. Netið er svo slow hérna að ég yrði í alla nótt... En nú ætla ég að sjá hvort ég geti ekki fengið ofninn til að virka hér í herberginu... Ég var svo heppin að fá sérherbergi.. En núna eru allir í partýstandi uppi í aðalhúsi.. Glætan að ég nenni því...

Bestu kveðjur frá Soro


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Guðrún og Valdi

Höfundur

Guðrún og Valdi
Guðrún og Valdi

Fyrir framan Álfhólinn á Hvanneyri..

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (12.6.): 5
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 13
  • Frá upphafi: 294963

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 9
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband