14.10.2007 | 14:04
Menningarnótt í Köben
Það gerðist helst til tíðinda á fimmtudaginn að við fórum og fjárfestum í sjónvarpi.. Ákváðum að kaupa flatskjá þó þeir kostuðu meira en gömlu kassarnir en við höldum að við getum ekki losnað við gömlu kassana áður en við flytjum.. enginn vill kaupa svoleiðis lengur... svo við keyptum ódýrasta flatskjáinn sem var til 32" en rosalega flottan samt.. Svo þegar Valdi fór að skanna inn rásirnar þá komu inn held ég 23 rásir.. Íha... svo fáum við 27 rásir með internetinu en það var ókeypis á tilboði með 12 mánaða interneti.. Svo nú held ég að maður bara hætti í námi og fari að horfa á sjónvarpið he he... Það var nú aldeilis nautn að setjast í nýja sófann með teppið, rauðvínsglas, prjónana og fjarstýringuna... Ummmmmm...
Föstudagurinn var langur og strangur dagur hjá mér og reyndar líka Valda.. Valdi var í skólanum fram eftir degi en svo komu Hlynur og Siggi frá Köben í heimsókn. Valdi og Hlynur sýndu Sigga skólann í Alnarp og svo var farið í sýnisferð í nýju íbúðina þar sem ég held að sjónvarpið hafi vakið mesta athygli ásamt bjórnum í ísskápnum!!!! Síðan fóru þeir félagar allir saman til Köben þar sem Hlynur fór á "Reggie" tónleika og Siggi og Valdi komu að hitta mig..
Ég var mætt í skólann klukkan 9.00 en það var síðasti tíminn í Planter þar sem farið var yfir prófið og gert kennslumat og fleira.. Vá hvað ég hef áhyggjur af þessu prófi... Ég hef 14 daga til að lesa fyrir það en ég held samt að ég falli... Þetta er svo erfitt á dönsku.. En vá hvað ég ætla að reyna... En ég er búin að læra svo mikið í þessum kúrs... Svo klukkan 13.00 fór ég að hitta Karen og Brynhildi Þórey... Fyrir þá sem ekki vita þá er Karen kærasta Brjáns bróðurs og Brynhildur er dóttir þeirra. Það var svo gaman að hitta þær mæðgur. Brynhildur er núna 5 og hálfs mánaða og Karen lítur glimrandi vel út en hún var í heimsókn hjá vinkonu sinni í Köben sem á lítinn gutta á svipuðum aldri og Brynhildur. Sú litla skríkt og hló og fór alveg á kostum.. Brosti út í eitt og var svo þæg og góð.. Algerlega fullkomið eintak...
Eftir kaffihúsið með þeim mæðgum þá þurfti ég að sinna undirbúningi fyrir menningarnótt. En Sveppabekkurinn minn var með uppstillingu á tveimur stöðum í garðinum. Aðstaðan var mjög skemmtileg en básinn okkar var í göngum undir elsta og stærsta gróðurhúsinu og líka í tjaldi úti í garð. Þar sýndum við matsveppi, myglusveppi og svepp sem óx á skjá á veggnum (ógeðslega kúl)... og margt fleira.. Á mínútunni 18:00 þá fylltist allt af fólki... Alveg brjálað að gera.. Ég var mest í því að gefa sveppamassa og sýna fólki hvernig ætti að rækta Österhatte í klósetrúllu.. Ég var orðin svo steikt í hausnum klukkan 22:00 að ég vissi ekkert hvað ég var að segja.. bla bla bla... Þvílíkur erill... En þetta var mjög gaman að taka þátt í þessu og garðurinn logaði í stemningu og ljósum... Síðan komu Valdi og Siggi og sóttu mig og við settumst á kaffihús en svo tókum við Valdi lestina heim.. vá hvað ég var þreytt... Þreytt.. þreytt.... En við áttum svo eftir að hljóla heim af lestarstöðinni... Kalt og þreytt..
Jæjja núna er ég að fara í skólaferðalag upp til Soro einhvers staðar fyrir utan Köben... þar verð ég í einhverjum skála að skoða sveppi í fjóra daga... Valdi fer líka í ferð á morgun... Og svo næstu helgi byrjar próflestur hjá mér á FULLU... En íha.. Það er nettenging í skálanum... Jibbí... Og svo nettengjumst við á fimmtudaginn í næstu viku.. HALELÚJA...
Bestu kveðjur frá Malmö
Já Vaggi! Okkur "líður" bara vel í nýju íbúðinni....
Um bloggið
Guðrún og Valdi
Bloggvinir
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (12.6.): 5
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 13
- Frá upphafi: 294963
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 9
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
hæ hæ
flottar myndir
hafið það gott í nýju íbúðinni
kveðja frá Norge, Bebba og co
Berglind (IP-tala skráð) 14.10.2007 kl. 15:51
Hæ . Héðan er allt blautt að frétta og hefur ekki mælst meiri rigning í sept. frá því að samfelldar mælingar hófust. Við hljótum að fara að fljóta eitthvað á næstunni eftir ríkjandi vindáttum eins og önnur skip án mótors. Fín íbúð sem að þið eruð í og huggulegur sófir sem þið hafið keypt. Varðandi sjónvarpið er spurt hvað það hafi kostað og hvort að það sé fyrir HD? Sveppakúsrinn hlítur að vera mjög spennandi þar sem þeir eru svo margir og breytilegir. Lærið þið eitthvað um sveppi sem setjast á blöð á inniblómum og útirjám? T.D af hverju þeir koma og kannski lífrænar varnir gagnvart slíku? Hvenær eigið þið systurnarnar svo afmæli?
Kveðja Stein
Steinunn (IP-tala skráð) 14.10.2007 kl. 16:22
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.