Sagan endalausa...

Jæjja... Ég veit þið trúið því ekki en við erum ekki flutt ennþá!!!!

TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ JAKOB...

TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ UNNUR Í ÁSI...

Ég pakkaði og pakkaði og henti öllu ofan í Ikeaplastpoka og Valdi kom snemma heim úr skólanum til að flytja þar sem síðasta samtal við Önnu var að það væri 1 tími í þetta.... En sum sé þá hringdi Jakob kærastinn hennar Önnu og var alveg miður sín.. Hann sagði að Anna væri búin að fá taugaáfall og gæti ekki hætt að gráta... Hann margbaðst afsökunar en sagði að hann teldi að þau gætu ekki afhent íbúðina fyrr en á mánudaginn. Hann þyrfti að fara með Önnu heim til sín til Danmerkur til að jafna sig.... Djísus... Ég hélt ég yrði ekki eldri en svo sem ekkert hægt að gera en að samþykkja þetta... Hann hringdi svo seinna til að staðfesta að Anna gæti ekki hætt að gráta og lítið væri hægt að gera nema bíða... Ó boy... Þannig að nú gistum við Valdi inni í stofu hjá Rakel og búslóðin okkar í bílnum og að hluta hjá Matthildi í Lomma... Við ákváðum að gista ekki eina nótt í viðbót í fjólubláa hryllingnum enda var allt komið niður í poka og töskur... Niðurpökkunin var frekar hroðvirknisleg þar sem við töldum okkur bara vera að flytja milli húsa og ætluðum bara að henda þessu yfir... En ég þurfti að grafa mig í gegnum farangurinn bara til að finna föt og tannbursta fyrir helgina... Við enduðum í pizzuveislu hjá Hildi og Sigga, ásamt Matthildi, Rakel, Lilju og öllum börnunum sem fylgja þessari hersingu. En hvar væri maður ef maður hefði ekki alla þessa yndislegu Íslendinga sem vilja allt fyrir mann gera.. Lilja er búin að standa sveitt í þungaflutningum, Rakel situr uppi með okkur þessa helgi, Matthildur situr uppi með búslóðina okkar í geymslunni og stofunni og Siggi ætlar með okkur að redda ID kortum á morgun.. Hrein snilld....  Annars sendi Anna okkur sms í kvöld og var alveg miður sín að klúðra þessu svona en hún segir að við fáum líklega íbúðina á sunnudagssíðdegi... VONANDI... Ég sendi bara sætt sms til baka þar sem ég sagði henni að hafa ekki áhyggjur og vonandi liði henni betur...

Jæjja það er ekki annað hægt en að brosa bara að þessari hringavitleysu sem þessi húsnæðismál eru búin að vera hjá okkur, bara ekkert annað í stöðunni...

Bestu kveðjur frá Arlöv


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Guðrún og Valdi

Höfundur

Guðrún og Valdi
Guðrún og Valdi

Fyrir framan Álfhólinn á Hvanneyri..

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (12.6.): 5
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 13
  • Frá upphafi: 294963

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 9
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband