Lasin heima í fjólubláu íbúðinni..

Já það gerist varla verra en ég var lasin heima í gær í fjólubláu íbúðinni.... Hryllingur.. Hins vegar svaf ég til hádegis og leið svo talsvert betur... Síðdegis kom Valdi svo heim og við fórum í stúss.. Fórum með hjólið mitt í yfirhalningu en það var svona heldur vanstillt en nú er það alveg snilld.. Keyptum blek í nýja prentarann okkar og kíktum á svefnsófa í Jysk (Rúmfatalagernum). Alveg óskaplega eru þeir ljótir og dýrir..

Ég er enn að vinna í internetmálum fyrir okkur í nýju íbúðinni.... Ég get bara ekki skilið hvað er svona flókið við það að námsmenn vilji fá internettengingu... Það liggur við að við þurfum að framvísa fæðingarvottorði og sakavottorði... en ekki alveg, bara yfirlýsingu frá Lín og frá skatteverket um kennitölu... Djísus... Ég hringdi í annað fyrirtæki í gær og spurði um nettengingu en þá var svarið þar að ég gæti bara alls ekki fengið tengingu hjá þeim nema að hafa heimasíma sem tæki 6 vikur að fá... Er ekki allt í lagi með þessa þjónustu? Síðan stendur skýrt á heimasíðunni að það sé alveg hægt að fá net í gegnum breiðbandið... Jæjja ég bara brosi og tel upp að tíu þegar ég fæ svona þjonustu...

Um kvöldið þá var nammikvöld. Valdi og Lilja fóru í Coop og keyptu fullt af sælgæti og svo horfðum við á dramatískan þátt af Grays anatomy... Bara kósi... Ég var á meðan í því að fara í gegnum allt blaðrusl á heimilinu og henda til að vera tilbúin til að pakka niður.

Í dag er frí í skólanum hjá mér svo ég er að dunda mér við niðurpökkun og lærdóm. Hlakka svo óskaplega til að flytja...

Kveðjur frá Malmö


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðbjörg Guðmundsdóttir

er íbúðin sem þið fáið án húsgagna?? ég á hvíta Ikea bóka hillu hjá Hildi og Sigga sem ég er til í að selja og einnig svona litla kommóðu á hjólum sem er hægt að renna undir skrifborð eða nota sem hliðarborð. ég á ekki von á að ég kosti upp á flutning á þessu heim þannig að ef ykkur vantar svona þá.....!!! einnig á ég sæng og rúmföt sem er á lausu.

kv. guðbjörg

Guðbjörg Guðmundsdóttir, 5.10.2007 kl. 10:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Guðrún og Valdi

Höfundur

Guðrún og Valdi
Guðrún og Valdi

Fyrir framan Álfhólinn á Hvanneyri..

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (13.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 14
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 10
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband