29.9.2007 | 19:44
Flensudagur og internetraunir!!
Fáum ekki nýju íbúðina fyrr en á miðvikudag.
Frábært að sjá að Dafnar er að dafna vel á Hvanneyri og heimaskógurinn að komast í aktion.. Snilld..
Fúlt að missa af "Maður í mislitum sokkum" partýi í Brún.. Maður fær bara heimþrá við lýsingar Betu á kvöldinu...
Valdi er alger flensa í dag. Hóstar og hnerrar og er með hita. Ég er svona hálfsloj.. en er að vona að ég sé að sleppa.. Þetta er slæm helgi fyrir Valda til að vera með flensu því hann á að vera að læra undir próf en það gengur illa.. Svo dró ég hann út í hádeginu til að skoða internettengingarmál fyrir nýju íbúðina.. Þetta byrjaði sem ósköp næs rölt í góðu veðri niður aðalgötuna og þar rákumst við á skemmtilegan grænmetismarkað á Drottningartorginu þar sem var selt lífrænt grænmeti, gærur, heimabökuð brauð og ýmislegt fleira spennandi. Svo héldum við röltinu áfram og þá var aðeins byrjað að rigna. Og þegar kom að Litla torgi þá var þar handverksmarkaður í tjöldum. Valdi greyið var mikið lasinn en ég hljóp um eins og geðsjúklingur til að ná að skoða þetta allt án þess að gera út af við Valda sem bara hnerraði.. Ég fann alveg ÆÐISLEGA hringi.. en ég er með mikla hringadellu og hef ekki fundið nýtt áhugavert lúkk á steinahringjum í áraraðir en þarna voru frábærir hringir.. Ég er búin að HINTA við Valda að ég eigi afmæli í lok okt.. en hann minnir bara á að ég hafi gefið honum VIFTU!!!!!
Þegar þarna var komið þá var byrjað að rigna svolítið meira og við fundum símabúð og fengum þær upplýsingar að það tæki 3 vikur að fá internettengingu og það væri sama hjá hvaða fyrirtæki, það væru alltaf þrjár vikur.... COMMON... er þetta ekki ólöglegt samráð? Það setur mig í hrikaleg vandræði að hafa ekki netið því ég er algerlega háð orðabókinni á netinu og google-myndunum til að læra... Svo er bara hægt að fá netið ef maður skráir sig í heilt ár. Ég varð alveg brjáluð við að heyra þetta og svo var líka farið að rigna allverulega svo ekki bætti það geðheilsuna.. Einu sinni hélt ég að mesta skriffinnsku vesenið í heiminum væri í Gambíu því þar sögðu þeir alltaf "come back to morrow" en eftir að ég fattaði að það þýddi að ég ætti að borga mútur þá fór allt að svínvirka, hratt og vel... Síðan hélt ég að mesta vesenið væri á Íslandi en nei.. Nú hefur Svíþjóð vinninginn í veseni og formlegheitum.... Verst maður getur ekki bara mútað þeim líka.... það kerfi svínvirkaði....
Jæjja annars er bara lærdómskvöld í kvöld hjá mér og vonandi Valda líka.
Kveðjur frá Malmö
Um bloggið
Guðrún og Valdi
Bloggvinir
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (13.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 14
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 10
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Já GB, þú getur ekki búist við miklu út af blessuðu viftunni. Segðu Valda bara að gefa þér enn eina krukkuna, þú ert svo mikill krukkusafnari.
Elin (IP-tala skráð) 30.9.2007 kl. 18:35
elskan mín þetta er bara byrjunin á veseninu við kerfið í Svíaríki he he
Guðbjörg Guðmundsdóttir, 5.10.2007 kl. 10:49
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.