28.9.2007 | 20:26
Lestarraunir...
Flytjum á þriðjudagskvöld.. Íha..
Valdi er í próflestri þessa dagana svo hann tók sig til og hjólaði upp í Alnarp á bókasafnið til að hressa sig við og læra. Leiðin er skemmtileg og þægilegt að hjóla hana enda eru skipulagðir hjólastígar hér um alla borgina. Það tók Valda um 40 mínútur að hjóla í skólann aðra leið.. Annars er Valdi með flensuskít og gengur hér um hnerrandi og hóstandi... Valdi fékk einkunn um daginn úr fyrsta prófinu sem hann tók við SLU og hann stóð sig bara nokkuð vel og var vel yfir meðaleinkunn. Svo er próf næsta þriðjudag og vonandi gengur honum eins vel.
Ég fór í skólann í morgun og lagði snemma af stað á lestarstöðina þar sem ég þurfti að endurnýja mánaðarkortið fyrir lestina. Ég var náttúrulega svo snemma að ég náði 7:42 lestinni.. Skaust þar inn á mínútunni og náði sæti og allt.. rann svo bara inn í Ipodinn minn og var eiginlega hálf sofnuð þegar ég fatta að lestin fór bara ekkert af stað... Svo sé ég að 8:02 lestin er komin á sporið við hliðna og fólk fer smám saman að týnast þar yfir.. Ég spyr einhvern tölvunörd fyrir framan mig hvort hann viti hvað sé að gerast, hvort við eigum að færa okkur yfir. En hann sagði að engin tilkynning hefði komið um slíkt.. En eftir nokkrar mínútur þá vorum við mjög fá eftir og svo slokknuðu öll ljósin í lestinni og hurðirnar lokuðust... og við ein eftir.. Úpps.. Svo við drifum okkur út en þá var 8:02 lestin stútfull svo ég varð að bíða eftir lestinni 8:22... Arrrrrgggggggg...... Mætti of seint og það tók mig 2 tíma að komast í skólann, meira ef maður telur með labbið í 25 mínútur..
Um daginn lenti ég líka í fáránlegu atviki. Þá var ég á Nörreport og það stóð Kastrup/Malmö C. á skjánum sem næsta lest á spori tvö... Lestin kemur ég og fleiri hoppum inn og lestin lokar svo hurðum og rennur af stað og um leið heyrist í hátalarakerfinu "This train is NOT going to Malmö".... Ha.... Hvurslags gildra var þetta... Nánast allir í vagninum hoppuðu á fætur.... Og út á næstu stöð sem heppilega var Aðalbrautarstöðin..... Skil ekki svona lestarrugl... Annars náði ég að sofna í lestinni í dag... Ansi þægilegt.. fáir í lestinni, ég var með gott sæti og svo bara vaknaði ég og vissi ekki alveg hvort ég væri enn í DK eða komin til Svíþjóðar eða bara komin aftur til DK.....
Þegar heim var komið þá fórum við Valdi í Sopstationen því ég gat ekki gleymt einni krukkunni sem ég sá þar um daginn en gat ekki borið á hjólinu mínu... Krukkan var enn þarna og þá sá ég að þetta var ekta gömul "Vallakra" krukka en líklega var ástæðan fyrir því að enginn hafði keypt hana enn sú að fyrri eigandi hafði málað hana gula að innan... Dó... Það var ljótt og eiginlega eyðilagði krukkuna. En ég ákvað að kaupa hana samt og athuga með málingarleysi sem og ég gerði og það svínvirkaði og nú er krukkan alveg glansandi fín uppi á skáp hjá okkur... En nú hef ég lofað að láta af krukkukaupum í bili allavega en ég hef fengið 6 frábærar ekta sænskar leirkrukkur fyrir um 7000 kr. íslenskar í skranbúðum eða Sopstationen. Bara nokkuð góður díll..
Kveðjur frá Malmö
Um bloggið
Guðrún og Valdi
Bloggvinir
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (13.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 14
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 10
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.