27.9.2007 | 20:23
Valdi kominn heim..
Nokkrir dagar í nýja íbúð.. Flytjum líklega ekki fyrr en eftir próf hjá Valda á þriðjudaginn.....
Nýtt albúm í dag..
Nú er ég búin að endurheimta kallinn minn... snilld.. En Valdi kom heim síðdegis í dag eftir skemmtilegt og lærdómsríkt skólaferðalag til Tönnersjöhed. Skógurinn þar er tilraunaskógur sem SLU sér um að mestu leyti. Þarna eru endalausar tilraunir á vegum SLU og fleiri aðila en þarna eru um 1000 hektarar af skógrækt. Svæðið er rosalega skemmtilegt bæði til útivistar og kennslu. Dagarnir fóru í það að gera ýmsar æfingar sem kennararnir lögðu fyrir. Á kvöldin var talsvert stuð en tveir nemendur áttu afmæli í ferðinni og af því tilefni var haldið strandpartý og svo annað hefðbundið partý... Valdi ellismellur sleppti strandpartíinu en lét nú sjá sig í hinu partýinu... Krakkarnir eru náttúrulega svolítið yngri og djömmuðu eitthvað öll kvöld enda alveg eftirlitslaus... Nú er eitt par komið í bekkinn en Úlo og Catrin eru byrjuð að skjóta sig saman... úlll lall la.....
Á leiðinni heim í dag voru fórnarlömb Guðrúnar skoðuð.. En það var RISA-STÓR timburstafli sem lá í valnum eftir að Guðrún (óveður) fór yfir svæðið árið 2005. Búið var að taka gamlan herflugvöll undir timburgeymslu (lager). Í dag eru þarna ein milljón rúmmetrar af timbri en voru um 3 þegar mest var eftir Guðrúnu. Staflinn er 2,3 km á lengd og 5-6 raðir af timbri í hvora átt út frá akveginum á milli. Svakalegt að sjá hvernig Guðrún hegðar sér.... Maður veðrur bara hræddur!!!!!
Dagurinn hennar Guðrúnar var ósköp rólegur.. Þvottadagur fyrir hádegið ásamt lærdómi og svo bara lært og lært og lært eftir hádegið..
Kveðjur frá Malmö
Um bloggið
Guðrún og Valdi
Bloggvinir
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (13.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 14
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 10
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Já, hún Guðrún er sko dugleg þegar hún tekur til hendinni
Halla (IP-tala skráð) 28.9.2007 kl. 15:40
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.