Trimmdagur..

6 dagar í nýja íbúð

Jæjja Valdi fór í morgun í nokkurra daga ferðalag á vegum skólans. En heppin er ég að Lilja er hjá okkur þessa vikuna svo mér leiðist ekki neitt.. Annars var reyndar dagurinn frekar hundleiðinlegur framan af... Ég var andvaka í morgun og settist við tölvuna klukkan fimm í morgun.. Stússaðist þar við að skoða kúrsa fram og til baka.. Fann nokkra nýja áhugaverða en heimasíða Kaupmannahafnarháskóla er ekki nein snilld eða þannig. Allir kúrsar fyrir næstu vorönn eru merktir 2007 því ekki er búið að uppfæra upplýsingarnar fyrir 2008, það þýðir að allar dagsetningar eru rangar og það er mjög óþægilegt og auk þess er maður bara alls ekkert viss um að kúrsarnir séu kenndir yfir höfuð.. Ég hef hingað til valið "kúrsar á ensku" og þá kemur ákveðinn listi en í dag fór ég í kúrsar á dönsku og þá kom ennþá lengri listi og hvað haldiði, flestallir kúrsarnir kenndir á ensku.. Dö... En kúrsalýsingarnar á dönsku.. Ég er ekki alveg að ná þessu sýstemi.. En núna held ég að ég sé komin með sæmilega kúrsauppsetningu, reyndar allt of margar einingar en sjáum til..

Eftir að Valdi fór þá sofnaði ég í tvo tíma og vaknaði svo og fór að læra og lærði bara allan daginn alveg fram á kvöld og þá ákvað ég að fara út að kraftlabba... Ég hafði keypt mér lítil lóð um daginn og svo keypti ég skrefamæli, svona ódýran sem maður tengir við sig.. Mér finnst alltaf svo gaman að hafa einhver svona leikföng þegar maður er að trimma... Einu sinni keypti ég GPS úr sem var alveg snilldar - labbileikfang... Þar til það hætti að virka... En fyrir ykkur sem ekki vitið þá var ég einu sinni mikill trimmari, hvort sem þið trúið því eða ekki... En allavega þá ruslaðist ég út með Ipod, skrefamæli og nýju handlóðin mín.. Og þetta var svo rosaleg gaman að ég bara hljóp og hljóp... eða þannig.. lufsaðist milli ljósastaura annað slagið.. En ég er allavega komin í stuð.. Hljóp og labbaði ca 2,5 km og var 25 mínútur að því samkvæmt mælinum góða.. Ég hef ekki hlaupið síðan ég tók smá törn á Hvanneyri hér um árið.. Fór stóra hringinn en var ekki í sérstaklega góðu formi og þegar ég kom að nýja fjósi þá ákvað ég að taka góðan sprett áleiðis heim í nemendagarða og svo þegar ég var að gefast upp þá kom einhver labbandi.. svo ég þurfti að "lúkka" vel svo ég hélt áfram að hlaupa og svona gekk þetta alla leið heim þar sem Unnsteinn og Óðinn voru að þökuleggja fyrir utan íbúðina mína.. Ég spretti úr spori létt á fæti eða þannig og hentist inn um hurðina og bókstaflega krassaði á gólfið.. Og hef ekki hlaupið síðan....

Kveðjur frá Malmö


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðbjörg Guðmundsdóttir

Hæ hæ og til hamingju með nýja hjólið  og trimmið þú verður komin í svakalegt form þegar þú kemur heim, Valdi má fara að passa sig svo hann haldi í við þig  kv. af klakanum, snjólína er komin niður í 200m hér.

Guðbjörg Guðmundsdóttir, 25.9.2007 kl. 11:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Guðrún og Valdi

Höfundur

Guðrún og Valdi
Guðrún og Valdi

Fyrir framan Álfhólinn á Hvanneyri..

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (13.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 14
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 10
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband