20.9.2007 | 19:43
Sögur af Káti ofurhundi...
11 dagar í nýja íbúð...
Dagurinn minn var rólegur.. En ég átti frí í dag.. Ég vaknaði seint enda einhver hálfflensuskítur í gangi hér á heimilinu. Ég þvoði þvotta og lærði í allan dag.. BORING... Valdi var í skólanum að hlusta á fyrirlestur um Swedish forest agency fyrir hádegið og svo að hlusta á nemendaverkefni og dæma þau eftir hádegið.. Hann lagði sig svo þegar hann kom heim þar sem hann var hálf flensulegur eins og ég.
Hápunktur dagsins var hins vegar að fá bréf frá Jóni bónda í Ölvisholti sem er að passa Kát en eins og þið flest vitið þá vorum við svo heppin að koma honum í fóstur í alvöru sveit þar sem eru tveir litlir guttar og vinnufólk sem atast í honum allan daginn. Hann brosir víst alveg í hring alla daga.. Gaman gaman.. En hann Kátur lenti í smá hremmingum um daginn sem hefðu getað farið illa ef hundurinn væri ekki svona hlýðinn. Jón bóndi var að fara að gera við þakið á fjósinu og fór út á þakið og upp á efsta og brattasta hlutann.. Ekki hvarflaði að honum að Kátur myndi elta þó hann sé húsbóndahollur en.... Allt í einu heyrir Jón undarlegt hljóð og lítur við og þá rennur Kátur framhjá honum niður þakið alveg forviða á svip en stoppar í þakrennunni.. Úpps.. Jón kallar til hans "Stittu kjurr" og hann hlýddi og beið rólegur þar til tveir trésmiðir komu með stiga og björguð honum.. Greyið litla..
Hins vegar fékk Kátur að spreyta sig á smalamennsku og stóð sig bara ljómandi vel.. Annað slagið sleppa nágrannakindur inn á túnið hjá Jóni og hann þarf að smala þeim út og í þetta sinn tók hann Kát með sem fór bara beint í að smala þeim saman í hóp og halda þeim þannig eins og hann hefði aldrei gert annað.. Snilld.. nú gat Jón fengið þarna tækifæri til að skamma rollurnar augliti til auglitis og upplýsa þær um eitt og annað viðvíkjandi landamerkjum, girðingum og beit í hans túnum og svo var þeim smalað heim til sín.. Jón bíður nú spenntur eftir að kindurnar sleppi aftur yfir á hans tún til að geta þjálfað Kát betur...
Já við söknum Káts mikið enda er þetta besti hundur í heimi... En mikið óskaplega vorum við heppin að koma Káti á svona gott heimili.
Kveðjur frá Malmö
Um bloggið
Guðrún og Valdi
Bloggvinir
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (13.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 14
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 10
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
HÆ SVÍI.
ERTU TIL Í AÐ SENDA MÉR EMAILIÐ ÞITT TIL ÞESS AÐ ÉG GETI SENT ÞÉR UPPLÝSINGAR UM LANDAMERKJAMANNINN.
KVEÐJA VAGGI
VAGGI (IP-tala skráð) 21.9.2007 kl. 09:19
Hæ
Loksins orðin gjaldgeng í Svíþjóð
maður er nefnilega ekki neitt ef maður hefur ekki kennitölu. það er alveg undarlegt hvað fólk verður tómt í augunum þegar meður segist ekki hafa sænskt ID númer. en nú egið þið eftir að sækja um ID-kort og þá hefst nú gamanið fyrir alvöru he he. Heyrðu þú mannst eftir að ég á hjól sem er á lausu. 
kv. guðbjörg
Guðbjörg Guðmundsdóttir, 21.9.2007 kl. 13:26
Góður hvutti
Stefán (IP-tala skráð) 22.9.2007 kl. 21:47
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.