Við erum Svíar!!!! (Nýbúar)

12 dagar í nýja íbúð..

Valdi vaknaði snemma til að undirbúa flutning á verkefninu sínu sem hann flutti klukkan 14.20 í dag.. Valdi var smá stressaður enda að flytja fyrirlestur á ensku. Síðan áttu nemendur og kennarar að gagnrýna flutninginn og efnið. En viti  menn.. auðvitað gekk þetta ljómandi vel hjá honum..  Valda var mjög létt þegar hann kom heim og hann hagaði sér eins og fífl í allt kvöld.. Og viti menn.. stjörnuspáin hans sagði: "Þú verður þú sjálfur í kvöld"... Já skerí tilhugsun...

Valdi keyrði mig á stöðina í morgun þar sem ég var að flytja allan myglaða matinn til Köben til að geyma hann í skólanum. Ég var með hann í svona glæru plastboxi og fékk nokkra skrýtna svipi frá fólki  í lestinni þar sem í gegnum lokið blasti við mjög myglað kjötálegg og lyktin lak í gegn og var ógeðsleg.. Annars var tíminn í sveppafræðinni frekar Boring.. Við vorum að undirbúa Svampefest og það gekk erfiðlega að halda ungu, ljóshærðu, dömunum að verki.. Bla bla bla á dönsku og svo bara hangs því kennarinn var ekki á staðnum.. Ég var eins og gribba aldarinnar að halda þeim að verki..

Auðvitað var lestin 12 mínútum of sein á leiðinni heim.. Kemur manni nú ekki á óvart lengur.. Þegar heim kom þá fórum við Valdi í búð hér í næstu götu sem selur dánarbúdót.. En er bara opin á kvöldin tvisvar í viku. Ég hafði séð í glugganum þar krukku sem ég girntist undir sleifar, spaða og slíkt fyrir eldhúsið. Þetta er Hoganäs krukka en það er gamalt leirkerafyrirtæki hér í Svíþjóð sem er reyndar núna hætt að framleiða svona hefðbundið sænskt og er búið að uppdatera línuna eitthvað.. En þetta var í gömlu línunni.. Þegar heim var komið þá kom í ljós að hún var heldur djúp svo sleifarnar og dótið drukknar bara í henni.. Úpps.. En ég fæ mér bara frauðplast í botninn eða eitthvað.. Þá reddast þetta...

Síðan skruppum við upp í Burlöv Center sem er verslunarmiðstöð að skoða hjól. Við fundum fín og ódýr hjól en ætlum að skoða þetta aðeins betur seinna þar sem við vorum með fullar hendur af matvörum og gátum því ekki skoðað hjólin almennilega en þessi stórmarkaður er ekki með litlar körfur, bara stórar sem þú þarft að setja pening í til að fá lánaðar og þær eru staðsettar úti á miðju bílaplaninu. En þar sem við ætluðum að rölta í aðrar búðir áður en við versluðum í matinn þá tókum við ekki körfu.. Þetta er undarleg viðskiptapælin.. Ég meina ef við hefðum haft almennilega körfu þá hefðum við gengið út með miklu meira af mat og tvö hjól..... En nei þeir tímdu ekki körfunum í okkur.... Síðan komum við heim og Valdi eldaði stórkostlega lambasteik.. ummmmm... Svo kom Lilja í heimsókn...

Hey.. við eurm orðnir SVÍAR..  Allavega erum við komin með sænskar kennitölur.. Þær komu í póstinum í dag.. Þá getum við loks skrifað undir löglegan leigusamning og slíkt.. Snilld..

Hej då fra Malmö!

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Guðrún og Valdi

Höfundur

Guðrún og Valdi
Guðrún og Valdi

Fyrir framan Álfhólinn á Hvanneyri..

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (14.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 15
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 11
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband