Skrópidagur hjá Guðrúnu...

14 dagar í nýja íbúð..

Ég ákvað að skrópa í sveppakúrsinum í dag.. Hann átti bara að vera til hádegis og ég bara nennti ekki að fara.. Ég nýtti daginn talsvert betur með því að fara með Valda í skólann og sitja á bókasafninu þar og læra.. Skólinn hans Valda er svo yndislegur, kósi og vinalegur að ég hef hér með ákveðið að þykjast vera nemandi þar og mæta við öll tækifæri með Valda í skólann og hanga á bókasafninu!!!!  Valdi var að vinna í hópverkefni í allan dag með Ívani og gekk það bara vel.

Íslendingafélagið í Alnarp (Rakel, Lilja, Valdi, Matthildur og Hildur) hafa ákveðið að borða alltaf saman í hádeginu á mánudögum.  Það klikkaði síðast því Valdi og Rakel voru í ferð en núna borðuðu allavega saman Rakel, Guðrún og Valdi en ég hef eins og áður segir ákveðið að þykjast vera nemandi í Alnarp og mun því mæta á þessar samkundur boðin eða óboðin..... Hildur er á Íslandi og Lilja var ekki á svæðin.. Hvar Matthildur var veit ég ekki...

Eftir skóla fórum við Valdi á rölt að kíkja í hjólabúðir en við höfum ákveðið að fjárfesta í hjólum því það er eini rétti ferðamátinn hér í borginni. Einnig held ég að ég nenni ekki að labba ríflega 3 km á lestarstöðina á morgnana eftir að við flytjum en núna labba ég 2 sem er hæfilega hressandi...

Kvöldið fór í vinnu hjá Valda og lærdóm hjá mér.. En ég er bókstaflega að þýða mig í gegnum "De højere planters evolution og klassifikation"  Gasalega spennandi efni... Ég vil meina að þessir dönsku grasafræðingar sem skrifuðu bókina (allir þrír að kenna mér) hafi bara skáldað upp orð þegar þeir vissu ekki hvað hlutirnir heita.. Ég er með einar 7orðabækur og svo orðabókina á netinu til að gaufast gegnum þetta....

Kveðjur frá Malmö


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

hæhæ

Vá, hvernig væri að Íslendingafélagið í LIFE, KVL tæki sig saman og borðaði saman einu sinni í viku? Það eru líklega á bilinu tylft til hálfur annar tugur íslendinga í deildinni. Það væri stuð.

Stefán (IP-tala skráð) 18.9.2007 kl. 17:54

2 Smámynd: Guðbjörg Guðmundsdóttir

halló

já skólinn minn er ágætur en ég var nú samt búin að fá alveg nóg af því að sitja á bókasafninu í fyrra áður en ég fékk netið heima. en varðandi hjól þá er ég hjartanlega sammála og vildi bara benda þér á að ég á hjól hjá Hildi og Sigga sem ég nota bene er ekki að nota núna. það gæti verið til láns nú eða bara til sölu. ég keypti það nýtt í fyrra þú getur kíkt á það ef þú vilt.

kv. guðbjörg

Guðbjörg Guðmundsdóttir, 19.9.2007 kl. 14:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Guðrún og Valdi

Höfundur

Guðrún og Valdi
Guðrún og Valdi

Fyrir framan Álfhólinn á Hvanneyri..

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (14.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 15
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 11
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband