Kastalinn í Malmö

15 dagar í nýja íbúð..

Nýtt albúm í dag..

Náði aðeins að læra fyrir hádegið en ég eyddi mestum tímanum í að koma veforðabókinni minni aftur í tölvuna.. Hún ákvað bara að vera ekki með í dag.. En svo fórum við með Lilju, Rakel og strákunum labbandi niður í Kastalann í Malmö.. Hann er mörghundruð ára gamall með síkjum í kring, virkisvegg og fallbyssubyggingum.. Á leiðinni að kastalanum þá duttum við niður á skranmarkað á Drottningartorginu.. Svo sem ekkert merkilegt dót en ég datt niður á stálbakka með viðarhöldum en ég er svolítið húkkt á svoleiðis bökkum.. Þeir eru innilega ekki í tísku svo þessi kostaði 200 krónur íslenskar.. Valdi var ekki nógu snöggur að átta sig á því að ég væri stungin af inn á markaðinn vopnuð peningaveskinu mínu.. hehe..

Þegar við komum í kastalann þá keyptum við einn miða fyrir öll söfnin sem tilheyra þessu safnasvæði en við náðum bara að skoða það sem var í kastalanum. En það var ruglingslegt.. Þarna var náttúrugripasafn með lifandi og uppstoppuðum dýrum, svo voru vistarverur konungs í kastalanum, allskonar skrýtnar uppstillingar og lítið speglasvæði. Ég náði aldrei neinum áttum í safninu í sjálfu sér en þetta var samt fullt af skemmtilegum sýningum og mjög gaman að skoða þetta. En í náttúrugripasafninu þar var svo mikið myrkur nema inni í búrunum en svo fattaði ég hvers vegna hehe.. Veggirnir voru ógeðslega bláir og druslulegir en ég sá það ekki fyrr en myndirnar fóru í tölvuna..

Eftir mikið og þreytandi safnastúss þá settumst við inn á kaffihúsið í kastalanum, það var ósköp ljúft. Þar sáum við kindur á beit úti á túni sem mér fannst frekar fyndið svona inni í borg.

Síðan röltum við heim í gegnum gamla bæinn.. Guttarnir orðnir þreyttir og fengu að fara á hestbak hjá Rakel og Valda..

Kveðjur frá Malmö


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðbjörg Guðmundsdóttir

hvernig er það er íbúðin alveg ómöguleg sem þið fenguð? íbúðin sem ég skoðaði í vor fyrir ykkur var einmitt líka á kirseberg  mér sýnist helst að það sé ekki langt frá þessari sem þið eruð að fá núna.

ég sé að þið eruð á fullu að kynnast borginni þið eruð svona í svipuðum gír og ég fyrir ári síðan.

Guðbjörg Guðmundsdóttir, 17.9.2007 kl. 11:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Guðrún og Valdi

Höfundur

Guðrún og Valdi
Guðrún og Valdi

Fyrir framan Álfhólinn á Hvanneyri..

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (14.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 15
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 11
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband