13.9.2007 | 21:52
Prófdagur hjá Valda
TIL HAMINGJU MEÐ BÍLPRÓFIÐ SUNNA!!!
18 DAGAR Í NÝJA ÍBÚÐ
Valdi fór í próf í morgun. Það var fyrsta prófið sem hann tekur í skólanum en systemið er þannig að hann tekur stuttar tarnir og svo er prófað úr hverju efni fyrir sig. Þetta var próf í Silviculture of Broadleafs og aðallega spurt um tegundir sem vaxa ekki eða illa á Íslandi en Valdi heldur að þetta hafi nú gengið sæmilega.
Ég tók þvottadag í morgun en einhver fáviti hafði sett eitthvað inn í lásinn á hurðinni milli Blokkanna svo bara fólk í næstu blokk gat þvegið í eina viku.... En loksins var gert við þetta. Mér finnst svo gott að þvo á morgnana því þá fæ ég allar vélarnar fyrir mig en hins vegar gekk það ekki upp í morgun og ég var staðin að verki að setja í báða þurrkklefana.. Úpps.. En það var í fínu lagi ég bara játaði á mig syndir mínar og konan bara skellti sínu dóti í þurrkherbergið.. Skildi alveg að ég var með svo mikinn þvott..
Þegar Valdi kom heim úr prófinu þá píndi ég hann með mér í Sopstationen (góða hirðin) en ég elska að fara þangað og skoða dót.. Þar fann ég alveg brjálaðislega flott 12 manna antík matarstell með sósuskál og 6 auka bökkum og skálum fyrir 7000 krónur íslenskar.. En sem betur fer hafði Valdi hemil á mér og taldi mig ofan af að kaupa þetta.. Nú hefur verið búin til ný regla að Valdi kemur alltaf með í Sopstationen eða þá að ég fari þangað án peningaveskisins svo ég kaupi nú enga vitleysu!!!!! Síðan dró ég hann upp í Lund því ég hafði séð þar gamla leirkrukkku sem ég var óskaplega skotin í en ákvað að hemja mig í það skiptið.. En svo fann ég aðra svipaða í Sopstationen sem ég keypti og þá langaði mig í hina í stíl.. Valdi snillingur fann búðina aftur en ég er svo gersamlega áttavillt að ég hefði aldrei rambað þangað ein.. Og við keyptum krukkuna en þetta er 100 ára gömul Höganes krukka en Höganes er eldgömul leirkeragerð sem er enn við lýði en hefur eittvað uppdaterað sig í nýtískuvörur.. Við ætlum að fara þangað einhvern daginn í heimsókn og skoða tvær aðrar leirkerasmiðjur á svipuðu svæði.
Síðan fórum við heim og ég fór að læra og Valdi að vinna í tölvunni. Seinna um kvöldið tók ég törn í að leita að miðanum með símanúmerum fólksins sem við leigjum hjá í næsta mánuði en fávitarnir við erum búin að týna miðanum... Djísus... En við ætlum að rúnta til þeirra um helgina og banka upp á til að redda þessu...
Verð í lokin að segja frá atviki sem gerðist í El Gigante (ELCO) um daginn þegar við keyptum Múltíprentarann... Ég hélt ég myndi deyja.. Við vorum sum sé búin að kaupa prentarann og vorum að skoða allskonar hluti sem okkur vantar ekki td. bílagræjur.. Græjurnar voru allar settar upp á vegg tengdar við hátalara til að prófa hljóðið.. Flókið stjórntæki var svo til að ákveða hvaða græju var hlustað á í það og það skipti.. Valdi fór að ýta á takkana og mér leist nú ekki á blikuna og sagði honum að hætta.. En nei hann fiktaði áfram þar til það blastaðist einhver 1 græja af 10... HÁÁÁÁÁÁTTTTT.. Búðin er jafn stór ef ekki stærri en stóra Elco heima og ég get svaið að ég held að fólkið út á bílaplani hafi heyrt í græjunum... Ég stökk á alla "lækka" takka og Valdi stökk á stjórnborðið.. Loksins hætti hávaðinn eftir pínlega langan tíma... Við hundskuðumst í burtu og hefðum gefið handlegginn fyrir hauspoka!!!!
Hávaðakveðjur frá Malmö
Um bloggið
Guðrún og Valdi
Bloggvinir
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (14.6.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 15
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 11
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.