Próflestur og dýratrums

19 dagar í nýja íbúð..

Nýtt myndaalbúm enn og aftur.. Verð að minnka þetta myndatrums því það tekur svakalegan tíma.. Eins gott að einhver sé að skoða þetta.

Annars er fátt um daginn hans Valda að segja nema að það var PRÓFLESTUR Í ALLAN DAG.. Hann fór á bókasafnið í Alnarp til að læra eftir hádegið og svo í kaffi til Rakelar þar sem við áttum póst að vanda en við höfum misnotað heimilisfang hennar algerlega til að fá póst til okkar.

Ég hins vegar vaknaði 6.30 til að komast í lestina 7.42 til Köben en í dag áttum við að fara á Zoologiske museum (ekki sl. mánudag eins og ég hélt). Ég var hins vegar svo snemma á ferðinni að ég náði 7:22 lestinni.. Reyndar þurfti ég að hlaupa í panikkkasti og ýta á hnappinn á öllum hurðum ásamt einhverjum Jakkalakka sem var alveg að panikka.. Og loksins opnaðist ein hurðin og við komumst inn.. Svona er ég sjúklega stundvís að ég náði lestinni á undan.. Það er nú eitthvað að því.. En jæjja það var ágætt að vera tímanlega..  Fyrir hádegið vorum við á Náttúrugripasafninu sem var mjög áhugavert. Yfirsafnakonan var reyndar óskaplega neikvæð á allt því hún fílar ekki húsnæðið og virðist ekki nenna að gera neitt í skipulagi eða slíku fyrr en þau flytja í nýtt sem verður í fyrsta lagi 2009. En mér fannst þetta skemmtilegt en skrýtið safn. Þau blanda saman sögu náttúrufræðinnar og svo dýrunum. Þarna var mikið um landkönnuði og einnig var þarna sýning um notkun á fjöðrum hjá mannfólkinu í gegnum árhundruðir.. Td. var þarna dúnúlpa og indíánahöfuðskraut og líka gína í brasilískum kjötkveðjuhátíðarbúningi. Þetta var ljómandi skemmtileg pæling. Í hádeginu fórum við heim til Carolyn í bekknum til að borða nestið okkar. Hún býr í yndislegri íbúð þarna rétt hjá safninu. Ég er bara svo hrifin af hreinum og hvítum íbúðum þessa dagana að ég gæti verið svolítið hlutdræg. Eftir hádegið fórum við í zoologiske garden sem kom í ljós að var náttúrulega bara dýragarðurinn hér í Köben. Hann var mjög dapurlegur, skiltin í niðurníðslu og dýrin þunglynd eða eitthvað skrýtin í hegðun. Búrin voru skítug og þar fram eftir götunum.. En þetta var lífleg heimsókn, sérstaklega parturinn í Reptile húsinu. Þar fengum við að sjá fullt af exótískum eðlum, snákum og skordýrum. Svo fengum við að halda á herlegheitunum. Ein stelpa í bekknum sýndi okkur dýrin en hún er líka starfsmaður þarna. Ég var svo dugleg að halda á tveim slöngum og einnni eðlu.. Sleppti hins vegar kakkalökkunum og lirfunum..

Eftir að við vorum búin þarna þá tók ég strætó niður á Ráðhústorg en á leiðinni þá þurfti strætó að stoppa fyrir Margréti Danadrottningu og forseta Brasilíu í rosa fancy bíl með löggufylgd og fánum.. Ekkert smá kúl.. Ég sá Margréti drottningu mjög nálægt og mjög greinilega... Einnig sá ég kallinn en gerði mér ekki grein fyrir hver þetta var. Kúl....  Í stað þess að hundskast upp í lestina á Hovebanegaard þá fékk mín þá flugu í höfuðið að labba upp Strikið en ég hef aldrei labbað það frá upphafi til enda.. NIÐURSTAÐA: Strikið er ekki mjög spennandi verslunargata og alveg troðfull af Íslendingum.. En þegar á endann var komið þá fattaði ég að ég þurfti að labba hálft Strikið til baka til að komast svo Köbmagergade inn á Nörreport.. Labbi, labbi, labbi, labb.. Ég var eiginlega búin að labba mig upp að lærum þegar ég kom heim. 

Kvöldið var rólegt og fór aðallega í innsetningu á myndaalbúminu.. Ætla að vera dugleg á morgun að læra en Múltíprentarinn er alveg að SVÍNVIRKA en ég skanna inn skýringarmyndir úr orðabók og raða upp og skrifa íslenskar skýringar við. Þetta hjálpar mér mikið. Auk þess er ég nánast að þýða plöntubókina sem er á dönsku.. Það er eiginlega eina leiðn til að komast í gegnum þessa dönsku.. En hraðinn er að aukast hjá mér..

PS. hef ákveðið að leggja báðum tölvunum mínum þar til við fáum nýja íbúð og getum kallað til þjónustuaðila frá internetfyrirtækinu. Eins og er þurfum við að fara í gegnum Írakann og við nennum því ekki. Ég held það sé öllum fyrir bestu að ég bara leggi tölvunum og haldi geðheilsunni (minni og Valda)  góðri til mánaðarmóta.

Kveðjur frá Malmö


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ætli þú hafir ekki haft gott af labbinu!!  Neðst á Strikinu er búðin sem ég keypti töskuna mína í "Mulberry"   Já, fyndið, þú ert alveg á sama svæði og ég vann á, Store Regnegade 26, Þú gengur niður í átt að Kongens have, það er bar í kjallaranum þar og einhver skrifstofa á efri hæðinni.   'Eg og Kristján sáum einmitt drottninguna þegar við vorum þarna í sumar, hún keyrði framhjá okkur hægt og rólega með eitthvað flott fólk í fínum bílum á eftir sér.

 Héðan er allt gott að frétta, rok og rigning dauðans, svo er ég búin að vera með flensu í nokkra daga og þegar ég var að jafna mig þá stakk mig vespa í fótinn og ég er alveg að drepast.  Hún var í skónum mínum á saumastofunni.   

 Bestu kveðjur.  Gerður.

Gerður Bjarnadóttir (IP-tala skráð) 12.9.2007 kl. 22:16

2 identicon

Hæ.

Gaman að lesa bloggið og fylgjast með ykkur þarna. Ég er hins vegar að fara að passa Brynhildi í annað sinn í þessari viku - ég skila kveðju frá þér til hennar. Ég ætlaði með henni og Brjáni í ungbarnasund á þriðjudaginn en þá var kennarinn veikur, fæ annan sjens í næstu viku.

Kveðjur frá okkur í "Harmavíkinni"

Sigríður Sigtryggsdóttir (IP-tala skráð) 13.9.2007 kl. 11:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Guðrún og Valdi

Höfundur

Guðrún og Valdi
Guðrún og Valdi

Fyrir framan Álfhólinn á Hvanneyri..

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (14.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 15
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 11
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband