Staffanstorp og afmæli

20 dagar í nýja íbúð.. Íha..

Nýtt myndaalbúm fylgir þessari færslu..

Á sunnudeginum var lært fram að brottför til Staffanstorps en okkur var boðið í kaffi til Önnu Maríu og Vilbergs sem búa þar ásamt sínum tveimur börnum. Þau eru búin að vera í Svíþjóð í 7 ár og gátu  gefið okkur ýmis ráð. Við fengum vöfflur og hjónabandssælu.. Ummm.. þvílíkt lúffengt og svo röltum við út í matjurtagarðinn þeirra og skoðuðum hann og næsta nágrenni. Óskaplega ljúfur dagur.

Á mánudeginum lagði ég extra snemma af stað í skólann því við áttum að fara í Zoological Museum og það var lengra í burtu og eftir 2ja tíma ferðalag og mígandi rigningu þá var bara enginn mættur þarna nema ég. Eftir spjall við afgreiðslukonuna á ensku þá sagði hún "ertu ekki íslensk?" og viti menn þá var þetta Íslendingur..  En niðurstaðan var að ég hafði eitthvað misskilið málið og dreif mig bara upp í skóla og þá hafði ferðinni verið frestað og ég hafði greinilega misst af þeim upplýsingum. Örugglega verið sagt á dönsku!!!!  Fram til hádegis var bara umræða um Svampefest og gengið út frá því að við notuðumst við Ísskápahugmyndina mína, snilld. Þetta verður bara gaman.. Ég dreif mig heim eftir klúður lestarferð.. Þeir henda manni bara út hér og þar og fella niður ferðir og fresta og ég veit ekki hvað og hvað.. Gersamlega óþolandi.. Á leiðinni heim þá reddaði ég afmælisgjöf fyrir Valda en í ár var frumlegheitunum ekki fyrir að fara og mér datt bara ekkert í hug svo ég gaf honum viftu en slíkt vantaði sárlega á heimilið... Gasalega rómantískt og útpælt ekki satt.. hummmmmm...  Valdi kom svo heim úr vettvangsferð þar sem hann kynnti verkefnið sitt ásamt hinum tveim úti í skógi en það hafði verið mígandi rigning allan daginn og það var hægt að vinda Valda í heilu lagi þegar hann kom heim en nýja úlpan svínvirkaði... Við skutluðumst svo að kaupa múltíprentara og fengum loks afgreiðslu eftir dúk og disk.. Ég verð svo geðvond við svona aðstæður að ef ég hefði vitað um annan stað sem seldi þessar græjur hefði ég farið þagað.. En við höfðum gefist upp á laugardeginum á að bíða eftir afgreiðslu... græjan kostaði 14 þúsund krónur sem er talsvert mikið ódýara en heima tel ég.. Þá fórum við til Rakelar að sækja póstinn okkar og Valdi fékk afmælisgjöf frá Rakel og guttunum en það var hitabrúsi en eftir rigningarferð í skóginn um morguninn þar sem gott hefði verið að hafa með sér kaffi, þá datt Rakel þetta í hug.. Hrein snilld.. Síðan "bauð" ég Valda út að borða en við duttum óvart niður á rosalega fancy veitingahús í miðbænum.. Pöntuðum fjórréttað og líka fyrirfram ákveðinn vínseðil fyrir hvern rétt.. Svo voru allskonar aukaréttir inn á milli.. Þjónarnir þaulæfðir og ruku til og frá með hnífapör og rétti og við vorum ekki alltaf alveg viss um hvaða hnífapör færu með hverju eða hvaða matur eða meðlæti ætti saman og eins með vínið.. Þetta var eiginlega pínlega fínt.. En hver réttur eða diskur var algert lostæti.. svona bragðorgía og allt vel fram sett.. Rauðvínið sem við fengum með aðalréttinum var svo hrikalega gott að það rann niður eins og flauel... Þetta var ósköp ljúft en við sátum þarna frá 8.00 til 10:30 um kvöldið... Tók aðeins lengri tíma en Burger King... (og kostaði "aðeins" meiri pening). Ég held þetta hafi allavega verið það fínasta sem ég hef farið út að borða síðan ég var notuð sem tilraunadýr fyrir kokkalandsliðið fyrir Morgunsjónvarpið hér um árið en þá sat ég á hótel Óðinsvé dagstund og fékk örugglega 10 smáretti sem voru snilld...

Í dag er Valdi í próflestri og ég er að gaufast í tölvumálum. Ég nettengdist á minni tölvu á þráðlausu neti sem einhver er með hér í húsinu og Guðjón tölvuséni á Keldnaholti gat þá tengst minni tölvu... Greyið var í 1 og hálfan tíma að reyna að nettengja mig með kaplinum en það er bara ekki hægt.. Ég meina hvernig getur glæný tölva verið með svona vesen..... Skil þetta ekki.. Og geðheilsan mín er komin til ANDSK..... Svo þarf ég að fara í gegnum póstinn okkar að heimann sem kom í gær og þar kom í ljós að það er enn verið að rukka mig fyrir nettengingu heima, Stöð 2 hefur ekki endurgreitt okkur það sem við áttum að fá, Spölur hefur ekki borgað til baka tryggingagjaldið fyrir gangnalykilinn , Vís er enn að rukka bílatryggingar á bíl sem fór af númerum fyrir skömmu... Og svo framvegis.. Getur ekkert gerst automatískt í þessu þjóðfélagi... Af hverju þarf ég að pína fólk til að borga mér það sem mér ber... Þvílíkt vesen og langlínusímtöl... Já geðheilsan er tæp þessa stundina en lagast vonandi bráðum....

PS. Ég setti inn myndaalbúm af mér í vinnunni á fréttastofunni. Hann Hvati í Danmörku sendi mér þessar myndir af mér þar sem mig grunar að þetta hafi verið síðustu vaktirnar mínar og ég á enga mynd af mér í vinnunni eftir 10 ára feril eða meira.. Vona að Hvata sé sama þótt ég seti þessar myndir inn...

Geðbilaðar kveðjur frá Malmö


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Fín og geðvond færsla, en skemmtileg samt. Sé þig alveg fyrir mér. En hvað gerir sú sem er "skrifta" á Stöð 2?

Elin (IP-tala skráð) 11.9.2007 kl. 14:29

2 identicon

Hæhæ

Til hamingju með afmælið Valdi!!! Þú færð galdrakall , bófa  og geimveru í afmælisgjöf frá mér...

Við Faldur erum búin að vera á fullu í innanhússæfingum undanfarna daga.  Hann er orðinn mjög góður í því að víkja bæði að framan og aftan.  Teymist ágætlega þegar honum finnst áttin vera rétt.  Honum finnst sniðgangur vera einstaklega heimskuleg æfing og varð einkar fúll í dag þegar ég var að reyna að kenna honum hann og fór að hegða sér eins og jarðýta.  Ætla að halda áfram með hann núna í ca 10 daga í viðbót og sjá hvert það leiðir.  Vonandi fer hann að skilja hvað þetta er skemmtilegt að gera eins og knapinn leggur til...

Halla (IP-tala skráð) 11.9.2007 kl. 22:50

3 identicon

Til hamingju með afmælið. Flott vifta.  bæ bæ Sunna

Sunna (IP-tala skráð) 12.9.2007 kl. 14:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Guðrún og Valdi

Höfundur

Guðrún og Valdi
Guðrún og Valdi

Fyrir framan Álfhólinn á Hvanneyri..

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (14.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 15
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 11
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband