8.9.2007 | 19:48
Afmælið hans Stefáns
Nýtt albúm með þessari færslu
23 dagar í nýja íbúð..
Jæjja við sváfum út og nutum þess í botn en þurftum svo að lufsast á fætur um ellefu. Ég þreif eldhúsið sem ég nenni helst ekki að gera þessa dagana, hvað þá að þrífa aðra hluta íbúðarinnar.. Ég meina við erum að fara að flytja.. eftir 23 daga..
Við ætluðum að drífa okkur í smá stúss áður en við færum í afmæli til Stefáns son Hildar og Sigga Þórs. Stússið fór eiginlega í klúður vegna tímaskorts. Við fórum í El Gigante sem er svona Elko hér í Svíþjóð til að skoða svona multiprentara, með skanna, ljósritunarvél og slíku. Þetta er ekki svo dýrt hér ca 14.000 kr fyrir ágæta HP vél. En ekki var nokkur lifandi leið að fá þjónustu þarna svo við gáfumst upp og ákváðum að drífa okkur upp í Lund en þegar út í bíl var komið þá komumst við að því að tíminn var ekki nægur svo við fórum í Burlov Center til að skoða skó á mig. Valdi snillingur fann á mig skó sem smellpössuðu og ég keypti þá. Sko.. hann er svo mikill smekksmaður hann Valdi.. Síðan fórum við bara aðeins á röltið og meðal annars inn í H&M í BB deildina sem er "fitubolludeildin"... Valdi er hættur að þora með mér inn í þessar "stóru stærðir" búðir því ég verð svo geðvond.. Ég meina hvað er verið að pæla með þessum sniðum og efnum. Þverröndótt gerir engri konu gott, skærir litir eru heldur ekki grennandi.. Víð hálsmál eru bara til að sýna brjóstahaldarafarið, stuttar ermar leyfa Bingó-handleggjunum að njóta sín og mittissíðar skyrtur gera ekkert annað en að leyfa stórum afturendum að viðra sig vel.. Skil ekki þessa pælingu fyrir mitt litla líf.. En einstaka sinnum dettur maður niður á nothæfa flík svo ég held áfram að fara þarna inn og svekkja mig yfir þessu...
Jæjja en geðheilsan skánaði þegar við fórum í fjögurra ára afmæli Stefáns sem er sonur Sigga Þórs og Hildar og þau búa í Lomma í yndislegri íbúð. Þarna voru nokkrir íslendingar og ansi mörg börn sem voru svo spennt og skemmtu sér vel. Búið var að reisa "Partý-tjald" í garðinum og þar var afmæliskakan. Kakan var svona í sjóræningjastíl og það var afmælið í heild sinni líka. Veitingarnar voru þvílíkt góðar og glæsilegar. Eftir veitingarnar þá stjórnaði Siggi Þór leit að fjarsjóðskistu við mikinn fögnuð krakkanna og svo var farið í kapphlaup, boðhlaup og fleira.. Þetta var einstaklega skemmtilegur dagur í góðum félagsskap.
Þegar heim kom tók hins vegar við geðvonska yfir tölvunni minni sem ákvað núna að tengjast ekki nýju þráðlausu músinni.. En það poppaði í lag áðan með einum takka.. Vildi bara óska að tölvurnar mínar vildu nettengjast.. En það gerist bara seinna.
Valdi eldaði fínustu kálfasteik sem reyndar var ólseig en afskaplega bragðgóð. Ó já hér er sko hægt að hafa steikur á hverju kvöldi án þess að fara á hausinn..
Kveðjur frá Malmö
Um bloggið
Guðrún og Valdi
Bloggvinir
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (14.6.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 15
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 11
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.