7.9.2007 | 20:12
Skógardagur
24 dagar í nýja íbúð....
Myndaalbúm fylgir þessari færslu.
Valdi fór í dagsferð með skólanum í dag í skóginn í Skabersjö. Þar unnu nemendur í hópum að ýmsum verkefnum eins og að taka borkjarna úr beykitrjám og telja árhringina, telja sjálfsáð beyki á ákveðnu svæði og áætlua viðarrúmmál og gæði trjánna á svæðinu. Dagurinn var hinn skemmtilegasti enda var ágætis veður og stemningin góð. Nemendur höfðu einnig unnið hópverkefni í vikunni á undan og helmingur þeirra var kynntur úti í skógi í dag en hinn helmingurinn á að kynna á mánudaginn. Hver hópur fékk ákveðna trjátegund til að fjalla um út frá nýtingu í þeirra heimalöndum og hópurinn hans Valda fjallar um Ösp. Í dag voru teknar tegundirnar: Eik, Beyki, Elri og hlynur. Í ferðinni sáu þau lítinn snák í grasinu sem er friðaður hér í Svíþjóð. Hann spriklaði ógurlega þar til honum var sleppt. Einnig slæddist með í för froskur sem varð á veigi þeirra og var hinn gæfasti. Skabersjö er skemmtilegt svæði sem er mikið notað til útivistar en Valdi var næstum "keyrður" niður af nokkrum langhlaupurum sem þóttust ekki sjá skógfræðinemann við vinnu sína!!!!
Ég átti ekki að mæta í skólann fyrr en klukkan 10.15 svo ég fékk að sofa klst. lengur í morgun.. Lúxus... Það hvarflaði reyndar að mér að mæta ekki þar sem alls 3ja tíma ferðalag fyrir eina klst. og 45 mínútur í "havevandering" var eiginlega stór spurning hvort væri þess virði.. En ég dreif mig af stað því mér finnst þessir tímar skemmtilegir og lærdómsríkir. Í lestinni var hópur af einhverskonar skátum sem sungu "Ging, Gang, Gúllí, Gúlli" (eða eitthvað svipað.... ) í allavega 20 mínútur... HALLÓ... aðeins of mikil gleði aðeins of snemma... En loksins þögnuðu þau.. Ég meina eiga þessi börn ekki að vera í skólanum á þessum tíma... En líklega voru þetta nú ekki skátar heldur eitthvað lið í einhverju frá einhverjum skóla.. þau voru allavega í miklu stuði og sungu einhver Jolly lög og Ipodinn minn var batteríslaus og ég hafði ekkert að lesa!!!!! Auðvitða var mér svo hent út á aðalbrautastöðinni í DK. Þetta lestarkerfi er svo ruglað.. stundum fer lestin áfram til Norreport og stundum ekki. Ég er nú búin að læra að taka S-lestina áfram svo ég náði að mæta á réttum tíma.. Havevandering var ljómandi skemmtileg eins og alltaf og svo ætlaði ég nú bara að taka lestina til baka en þá var ferðinni aflýst og næsta ferð var með seinkunn svo það voru um 48 mínútur í næstu lest.. Djísus.. svo ég bara rölti mig niður einhverjar verslunargötur. Ég fann yndislega búð sem heitir Notre Dame og selur fullt af hlutum sem mann vantar EKKI... Mér tókst að versla tvær skálar, tvö glös og eina bastkörfu... Það er svolítið fyndið að strolla niður Strikið.. Þar eru bara Íslendingar, hægri og vinstri, alveg fjallhlaðnir verslunarpokum... Þegar niður á aðalbrautarstöðina var komið þá var ég svo þyrst að ég var að deyja.. Ég hálf skreið að einhverjum standi þar sem stóð " Are you thirsty?" Ó JÁ..... svo stökk ég upp í lest sem ég var ekki alveg viss um að væri að fara til Malmö.. En sem betur fer tók ég sénsinn því fólk var víst búið að bíða í klst. eftir þessari lest og hún var að fara til Malmö... Veit ekki hvað var í gangi í lestaráætlunum dagsins en þær eiga að vera á 20 mín. fresti.. Í Malmö fór ég á Sopstationen (góða hirðirinn) til að kaupa trog sem ég hef lengi girnst.. en þá var auðvitað búið að selja það.. Ég keypti hins vegar flotta krukku í staðinn.. En á þessum tímapunkti var ég orðin svo þyrst og þreytt að ég bara pantaði taxa heim.. Svo kom Valdi og við röltum aðeins niður í bæ en eftir það kíkti Rakel á okkur með guttana og svo Lilja og við fórum og fengum okkur að borða.. Svo var rölt heim og ég er á leiðinnin að krassa niður í rúm þar sem hitinn fer illa í mig og það er erfitt að labba í sól með marga innkaupapoka... (Shop untill you dropppppp það er það sem gerðist)... Og ég er DROPP núna...
Kveðjur frá Malmö
Um bloggið
Guðrún og Valdi
Bloggvinir
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (14.6.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 15
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 11
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Hæ. Jæja þetta eru nú aldeilis áhugaverðir dagar hjá ykkur. Við erum að leggja í hann á morgun og ef að ég kemst í tölvu þá kíki ég inn og kvitta fyrir mig . Annars geri ég það 15. sept. Valdi ég vona að þú eigir ánægjulegan afmælisdag á mánudaginn og hver veit nema að maður bjalli á þig frá ítalíu. Bið að heilsa Rakel og Önnu Maríu og þeirra fylgifiskum. Kveðja Steinunn
Steinunn (IP-tala skráð) 7.9.2007 kl. 23:02
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.