Lundardagur...

Til hamingju með daginn Sunna Mjöll!

25 dagar í nýja íbúð..

SÍMARNIR OKKAR Í SVÍÞJÓÐ: Valdi: 00 46 702574109 og Guðrún: 00 46 702579429.

Gaman að sjá athugasemdir frá öllum.. Ný nöfn að birtast annað slagið og gaman að því.. Einnig hafa tvisvar einhverjir sem við þekkjum ekki skrifað athugasemd sem mér finnst hrein snilld..  Hins vegar heyrist mér að þetta sé eitthvað maus að skrifa þessar athugasemdir.. Þarf að staðfesta í meili? Það er flókið... Vona að fólk hafi meiri þolinmæði en ég í svona málum.

Dagurinn hófst klukkan 7.00 hjá mér til að setja í þvottavélina.. Ég átti herbergið pantað frá 7.00 til 12.00. Hins vegar var enginn annar með bókað svo ég setti bara í fjórar vélar alveg á línuna.. Snilld.. Síðan hafði ég þurrkaðstöðuna líka alveg út af fyrir mig.. Ekki tókst mér að festa svefn aftur svo ég fór í tölvustúss til hádegis.

Valdi ákvað að mæta ekki í skólann í dag þar sem það var bara eitthvað svona nýnemakynningarjukk.. Ég hins vegar átti frí og ætlaði nú heldur betur að læra.. En nei.. Við Valdi ákváðum að slá þessu upp í kæruleysi og skjótast upp í Lund og skoða okkur um en við náðum ekki að sjá mikið þegar við vorum þarna um daginn. Við byrjuðum ferðina reyndar á að fara til Rakelar sem er í internetvandræðum sem er skelfilegt.. Maður er orðinn allt of háður þessu interneti og þá tala ég fyrir sjálfa mig. Ekki tókst okkur að hjálpa Rakel því miður.  Síðan skruppum við til Hildar og Sigga en þau búa í yndislegu húsnæði í Lomma. Þar fengum við kaffi og konfekt.. Mikið næs.. Og loksins lögðum við af stað upp í Lund. Þar röltum við um og skoðuðum í antíkbúðir og skranbúðir og ég veit ekki hvað og hvað.. Mér tókst að komast aftur af svæðinu án þess að kaupa neitt nema smá súkkulaði.. Geri aðrir betur... Við skoðuðum Dómkirkjuna sem er allsvakalega stór og flott. Ég fékk mér ís þrátt fyrir að eiga að heita að vera í "mataraðhaldi" en ísinn þarna er bara svo góður, svona kúluís.. Síðan klikkaði ég líka endanlega þegar ég fann súkkulaðibúð sem seldi svona truffles.. Ummmmm svo gott.. Ætlum að gæða okkur á því á eftir. Æi ég labba bara hraðar á morgun... OK..

Þegar heim var komið þá fórum við út í búð og keyptum svínafile, stóran bita, sem kostaði bara 600 kr. íslenskar en þetta er svona kjöt sem myndi kosta örugglega 1800 kall á Íslandi.. Um þetta var svo ljúffengt..

Þegar ég var að hlusta á Ísland í bítið á Bylgjunni í morgun þá var verið að fjalla um Al Qaída hryðjuverkamennina sem voru handteknir í Danmörku. Þeir voru víst búnir að plana heljarins hryðjuverk á Norreport stöðinni sem ég fer alltaf á á háannatíma.. SKERÍ.... Mér hefur reyndar alltaf fundist svolítið krípí að vera að ferðast í lestunum á þessum stóru stöðvum og lestin stoppar á Kastrup sem er alþjóðaflugvöllur og auk þess fer hún yfir Eyrarsundsbrúna.... En jæjja það þýðir ekki að hafa áhyggjur af þessu...

Í kvöld sáum við broddgölt hér út um gluggann. Við hlupum út á svalir og sáum hann skjótast hér milli bílanna.. Alger dúlla...

Kveðjur frá Malmö


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Guðrún og Valdi

Höfundur

Guðrún og Valdi
Guðrún og Valdi

Fyrir framan Álfhólinn á Hvanneyri..

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (14.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 15
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 11
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband