Experimentarium...

NÝTT MYNDAALBÚM!!

26 dagar í nýja íbúð.... En ég er svo spennt að ég er búin að halda í nokkra daga að það sé kominn 6. september.. Djísus.. tíminn ætlar aldrei að líða...  Í gær fengu svo Lilja og Vaggi íbúð. Hrein silld.. Nú þurfum við ekki að hafa móral yfir að hafa yfirboðið þau með hina íbúðina.. Sjúkkitt...

Sko.. Siggi.. Ég er klósettsnobbuð... Ég læt bara ekki bjóða mér hvað sem er.. Ég þarf að vera heldur betur desperat til að fara á klósetið í lestinni....

Halla.. Já það var núakkúrat það sem ég gerði.. Ég sleppti kaffinu og pásaði í klst. á meðan við Hlynur röltum um Köben (og leituðum að hreinlegum salernum....) En ég er nærri klst. í lestinni!!!

Stefán.. ég bara veit ekki hvað vandamálið hefur verið.. Ég kann ekki að kommentera á okkar síðu sjálf svo ég vona bara að það gangi betur næst.. Jú tölvan kann líklega ekki að reikna það er málið.. PS. verðum að hittast í Köben.. Eða þið kíkið yfir í heimsókn þegar við erum komin í dísent íbúð...

Annar var þessi dagur ljómandi skemmtilegur.. Ég þurfti að ferðast í 2 tíma í morgun til að komast í Experimenterium sem er í Hellerup. Þar áttum við að vera í Sveppakúrsinum í dag. Experimenterium er frábær staður sem tekur á móti skólahópum og almenningi en þetta er svona vísindasafn sem er með allskonar "interactive" leik- og sýnitæki. Þú getur skoðað augasteininn þinn þenjast út og inn, kannað viðbragðsflýti þinn, þú getur reynt að sökkva skipi með því að setja mismunandi álag á það og fleira.. Allskonar eðlisfræði og efnafræði sett í samhengi fyrir börn og unglinga.. Hrein snilld.. Krakkar! (Sunna, Linda og Jakob) við förum sko þangað um jólin... Við vorum í allskonar prógrömmum í dag, aðallega að fylgjast með fræðslustarfi þeirra. Þetta var ljómandi gaman nema að ég er alveg búin að fá mig fullsadda af viðhorfi kennarans hans Úlricks þegar við erum í umræðuhópum um hvað við eigum að gera á Svampefest sem er eftir hálfan mánuð og verður haldin þarna í Experimentarium.  Það er alveg sama hvað við komum með góðar hugmyndir hann slátrar þeim öllum.. Þetta er alveg innilega ekki hvetjandi til að koma með hugmyndir yfir höfuð...

Eftir óskaplega langa heimferð þar sem ég missti bæði af strætó og lest og svo var lestin sein þá komst ég loksins til Malmö og Valdi tók á móti mér á Central Station.  Dagurinn hans Valda var hins vegar rólegur. Hann svaf yfir sig.. (vissi að ég hefði átt að bjalla í hann!!!) og svo eftir hádegið kláruðu þeir félagarnir Ulo (Eistlandi), Rokas (Litháen) og Valdi verkefni sem þeir eiga að flytja á afmælisdag Valda, það er að segja næsta mánudag. En verkefnið fjallar um Ösp í þeirra heimalöndum og nýtingu á henni.

Við Valdi röltum svo um miðborgina í ljúfu veðri en Valdi var búinn að kaupa sér Ecco skó og svo keypti ég mér ódýra hliðartösku. Við keyptum líka batterí í myndavélina okkar sem kostar heima 9000 kr en 3000 hér.. Það lá við að það gripi mig græðgi og ég keypti fleiri en ég held að það sé nú ekki ástæða til.

Kveðjur frá Malmö 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hæ.  'Eg veit að pabbi þætti gaman að fá að heyra frá ykkur eða fá email frá ykkur.  Hvert er heimilsfangið ykkar sem að þið fáið og hvað er síminn hjá ykkur.  Kveðja að sinni Steinunn

Steinunn (IP-tala skráð) 5.9.2007 kl. 21:56

2 identicon

hæ hæ

þú ert svo dugleg að blogga og það er svo gaman að lesa þetta.

En ég ætlaði svo bara að láta vita að Óskar er orðin spenntur að koma í heimsókn og í gær á leið á leikskólann sagðist hann ætla að skreppa í heimsókn til Svíþjóðar eftir leikskóla og hitta líka Sigga og Hafþór. Við sögðum honum þá að þetta væri ekki alveg svona skreppi túr en við færum fljótlega í heimsókn. Já svo spurði hann líka hvort þið ættuð heima á hól líka þarna í Svíþjóð eins og á Hvanneyri.

heyrumst

Berglind (IP-tala skráð) 6.9.2007 kl. 08:54

3 identicon

Sæl bæði tvö.

Ég er farin að lesa þetta blogg ykkar spjaldana á milli, eflaust líkt og margir aðrir. Best finnst mér sagan af vinkonunni sem var skilin eftir á Hjaltlandseyjum, ég frussaði og hló.

En það er nú eiginlega vandamál hvað þið skrifið oft og mikið, ég á í stökustu vandræðum að koma því inn í skipulagið að lesa svona mikið af skemmtilegu bloggi.

 En mikið djö...er leiðinlegt að skrifa athugasemdir á þetta mbl.blog, ég nenni ekkert að fara í póstinn minn og staðfesta einhvern kóða og bla bla bla......

Kær kveðja frá klakanum, Daníel biður að heilsa og eflaust krakkadýrið líka ef það væri fætt og ef það gæti talað.

Ragnhildur Sævarsdóttir (IP-tala skráð) 6.9.2007 kl. 18:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Guðrún og Valdi

Höfundur

Guðrún og Valdi
Guðrún og Valdi

Fyrir framan Álfhólinn á Hvanneyri..

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (14.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 15
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 11
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband