4.9.2007 | 21:00
Íbúðaruppsögn
Valdi var í fríi í dag og notaði daginn til að fara á bókasafnið í Alnarp og læra. Síðdegis eftir skólalærdóminn þá var Valdi búinn að mæla sér mót við Sigga Þór til að fá aðstoð við að segja upp íbúðinni.. Þeir ætluðu tveir vígalegir í búðina til kallsins til að segja upp leigunni, en hann á skartgripabúð hér í hverfinu þar sem maður þarf að dingla til að komast inn og maður kemst ekki út fyrr en þeim þóknast að ýta á takka.. Smá skerí... En Siggi var nú aðallega hafður með til að koma í veg fyrir tungumálaörðugleika... En þegar þeir félagar lögðu af stað þá mættu þeir henni Lamiu hér á ganginu svo þeir bara sögðu henni þetta og hún tók því bara vel það er að segja ef hún hefur skilið þetta hehe... Jú jú.. þetta var víst skýrt og alveg á hreinu..
Ég fór í skólann snemma og átti erfiðan morgun þar sem kennarinn virðist ekki alveg vera að skilja enskuna mína hvað þá að geta talað hana sjálf.. Hún er öll af vilja gerð að hjálpa mér konan en henni tókst að afvegleiða mig svo í verklega hlutanum í morgun að ég var bara alveg strand til hádegis... Eftir hádegið var "havevandering" sem er alltaf skemmtileg út í Botanic gardens... Ég var orðin ansi þreytt þegar garðröltið var búið eftir nærri þrjá tíma en ég var með skólatöskuna á bakinu allan tímann með allar orðabækurnar og skólabækurnar... Eftir skóla var búin að mæla mér mót við Hlyn þar sem ég hafði keypt handa honum sænska möppu og gatara en þessar sænsku eru víst alveg sérlega góðar.... Við röltum aðeins á Strikinu og viti menn við hittum Snorra Sigurðsson, Unsteinn og Magnús frá Blikastaðasjóðnum. Það urðu fagnaðarfundir og mikið spjallað úti á götuhorni.. Þeir voru á leiðinni til Finnlands á einhverja bændabyggingaráðstefnu... Snilld...
Valdi sótti mig í lestina enda var ég alveg í spreng eftir að hafa drukkið tvo Guinnes... ALDREI að drekka neitt áður en ég fer í lestina.. ALDREI... En við Hlynur fórum á snilldar krá sem heitir Hvide vinstue minnir mig en þetta er sögufræg Íslendingakrá og var alveg ljómandi snyrtileg með mjög hreinlegum salernum...
Bestu kveðjur frá Malmö
Um bloggið
Guðrún og Valdi
Bloggvinir
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (14.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 15
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 11
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Flottar lýsingar, en ætlarðu að segja mér að þú hafir ekki fundið klósettið í lestinni?
siggi (IP-tala skráð) 5.9.2007 kl. 11:02
Sennilega verðuru bara að hætta að drekka fyrr næst og nýta hreinlegu aðstöðuna á Hvítu Vínstofunni í staðinn hihi... Það er nú alltaf gaman á klósettum í lestum og flugvélum og svoleiðis
Halla (IP-tala skráð) 5.9.2007 kl. 17:38
hæ flotta fólk
ég veit aldrei hvað á að skrifa í svona
En núna hef ég yfir einu að kvarta. Ég ætlaði að senda komment áðan og svaraði spurningunni alveg rétt. Summan af sex og sextán er tuttugu og tveir, en þetta bloggkerfi sagði að það væri rangt svar - þú getur bara sjálf verið röng.
Stefán (IP-tala skráð) 5.9.2007 kl. 17:50
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.