3.9.2007 | 17:17
Kerrukappreiðar, ný íbúð fundin og skrýtni sveppakúrsinn
Á sunnudeginum fóru Valdi og Vaggi á veðreiðar en þessa helgina var Derby-helgen í gangi. Þetta voru kerrukappreiðar á brokkurum. Mikill mannfjöldi var á vellinum en kappreiðavöllurinn er nánast inni í borginni. Stemningin var gríðarleg en hægt var að kaupa bjór og hamborgara á vellinum og sumir voru drukknari en aðrir. Menn veðjuðu grimmt og sumir grétu og aðrir hlógu að leik loknum. En Valdi og Vaggi lögðu nú ekkert undir í þetta sinn. Í úrslitahlaupinu þá ætlaði allt að verða vitlaust og menn görguðu og hvöttu sína hesta og minnti stemningin helst á landsleik í handbolta á ögurstundu . Þegar ljóst var hver hafði unnið þá fóru eigendur vinningshestanna hring á vellinum í opnum hestvagni. En þar á undan hafði verið heljarins verðlaunaafhending þar sem þeir fengu jakka og einhverja kostulega gripi. (Myndaalbúm fylgir þessu)
Við erum búin að finna íbúð!!!!!! Í Kirseberg hér rétt hjá. Það kom inn auglýsing á blocket.se í gærkvöldi svo ég sendi meil og hringdi svo eftir henni í dag. Þá sagði konan að það væru milljón manns búin að hringja og búið væri að bjóða 6500 í hana. Ég bara skaut út í loftið og bauð 7000 kr. gegn því að við fengjum að sjá hana strax. Það hittist þannig á að parið var í íbúðinn og við alveg rétt hjá svo við bara skutumst og þetta small allt saman. Þetta er ungt par sem ætlar að leigja út í vetur íbúðina sína sem þau eru að gera upp og þau tala fína ensku. Það verður allt hvítt og nýtt og nýjar innréttingar og hátt til lofts og næs... Við fáum hana 1. okt og ég tel dagana... En svo skömmu seinna þá kom í ljós að það voru Lilja og Vaggi sem höfðu boðið 6500 í íbúðina.. Úpps.. svo við vorum að yfirbjóða vini okkar hér í Malmö... Sem er náttúrulega heldur mikið skítt en ég vona bara að þau finni eitthvað við sitt hæfi sem fyrst. Annars fór Vaggi til Íslands í dag og verður allavega fram í október.. Það er fúlt.
Í dag fór ég í fyrsta tímann í Mycologíske feldtkúrs... En ég hafði eiginlega ekki hugmynd um hvað þessi kúrs fjallaði um. Jú eitthvað um sveppi... En þetta er sum sé kúrs sem kennir um sveppina og einnig hvernig á að miðla fræðslu til almennings á mannamáli. Við tökum td. þátt í Svampefest 2007 sem mér skilst að 11.000 manns komi á og svo erum við líka með stórt svæði í Botanic Gardens á Kulturnatte í Kaupmannahöfn, föstudagskvöldið 14. október þar sem verður horrorherbergi með slímsveppum og allskonar grín og fræðsla í gangi um sveppi. Þetta verður bara gaman hugsa ég. Síðan förum við í vikuferð til Soro í DK í lok kúrsins að skoða sveppi.
Jæjja ég þarf að fara að læra og Valdi er í grillveislu hjá skólanum.
Kveðjur frá Malmö
Um bloggið
Guðrún og Valdi
Bloggvinir
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (14.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 15
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 11
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Til hamingju með nýja íbúð. VIð kíkjum þá bara á ykkur í okt. hvernig líst ykkur á það? gangi ykkur vel í skólanum og við heyrumst
kveðja Bebba og co
Berglind (IP-tala skráð) 4.9.2007 kl. 10:11
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.