1.9.2007 | 22:07
Skemmtilegur túristadagur..
NÝTT MYNDAALBÚM FYLGIR ÞESSARI FÆRSLU...
Ó já .. Við ákváðum sum sé að verða túristar í dag.. Elín og Baldur komu snemma og Valdi hljóp út í búð og kepti nýbakað brauð og ég smurði Lúxus samlokur.. Loksins komumst við af stað eftir mikla smurningu, kaffi og internetkíkk. Vaggi og Lilja fóru að sækja systur hans Vagga Ragnhildi og og mannin hennar hann Valda og Hauk son þeirra Á Central Station, en þau búa í Kaupmannahöfn og ákvaðu að taka þátt í túristadeginum mikla. Ég og Valdi, Baldur og Elín og Rakel og guttarnir ákváðum að leggja af stað og hitta þau seinna.. Við hófum ferðina á að kíkja á gamla myllu sem er í Arlöv rétt hjá þar sem Rakel á heima. Myllan var frábær en auðvitað var hún lokuð í dag vegna einhvers.. Fúlt en við kíkjum bara aftur seinna. Hins vegar sáum við kindur og hænur sem vöktu athygli drengjanna.
Næsta stopp átti að vera Kungsmarken Nature Reserve en við gátum ekki fundið það almennilega í Garmin tækinu og ekki gekk að nota kortið til þess heldur.. Málið var að við vorum með kortið þar sem við X-uðum inn á staðina og Vaggi og Lilja voru með túristabókina þar sem staðirnir voru útlistaðir svo við vissum ekki alltaf alveg hvað var hvar.. hehe.. Við stoppuðum því í Lundi til að ná áttum og kaupa betri kort og slíkt. Lundur er yndislegur bær.. alveg yndislegur.. við röltum þarna um, urðum viðskila og villtumst smá.. En náðum loks saman og fengum okkur ís sem var frábær.. Ég var svo hrifin af Lundi að ég spurði afgreiðslustelpuna í ísbúðinni hve lengi tæki að taka lest til Malmö.. Jú jú bara 15 mínútur.. snilld.. Og hún var svo almennileg svo ég spurði hana bara áfram hvort það væri erfitt að fá húsnæði þarna.. Og hún sagðist sjálf vera að leita og það væri martröð. Hún mælti frekar með Malmö því þar átti víst að vera auðvelt að fá húsnæði.. Dö... Ég held nú ekki tilkynnti ég henni.. En ég sagði henni að mér þætti Lundur yndislegur bær og ég gæti alveg hugsað mér að búa þarna.. Jæjja eftir fínar leiðbeiningar frá Turistbyran þá fundum við Parkinn sem við ætluðum í.. En viti menn þetta var bara golfvöllur.. Dö.... Svo við héldum áfram á næsta áfangastað sem var Ystad Djurpark en þangað var 45 mínútna keyrsla og með aðstoð Garmin tækisins gekk sú ferð ljómandi.. Við keyrðum sveitavegi og skoðuðum sænska sveit og það var snilld.. Alger snilld.. landslagið er svona í bylgjum, tré og akrar og dýr á beit. Við sáum krúttlegustu hús í heimi á leiðinni. Ég lá í kortinu og skoðaði samgöngur til að vita hvort við gætum leigt þarna.. En nei.. samgöngurnar eru nú ekki að slá í gegn svona úti á landsbyggðinni.. Allavega ekki þegar maður ætlar alla leið til Köben..
Á leiðinni sáum við meðal annars Shetland pony sem er smáhestur.. Hann var feitur og pattaralegur.. Mér finnst alltaf jafn fyndið að sjá þessa hesta...
Þegar við komum í Djur parken þá voru allir orðnir mjög svangir svo við borðuðum nestið okkar. Af einhverri íslenskri hefð þá höfðu allir smurt of mikið svo nóg var til af ljúffengu nesti.. Kex og samlokur.. Elín og Baldur ákváðu að halda leið sinni áfram sjálf þar sem þau voru nýbúin að skoða svona dýrapark í DK en Vaggi, Lilja, Valdi, Ragnhildur og Haukur bættust í hópinn í staðinn.. Dýraparkurinn var FRÁBÆR... við vorum lengi að rölta um og strákarnir Hafþór, Siggi og Haukur nutu sín alveg í botn.. Þarna voru allskonar dýr.. Gamlar sænskar tegundir af húsdýrum og líka tegundir frá "langt í burtu löndum" eins og til dæmis Lamurarnir sem voru stórkostleg dýr með langt skott, frá Madagaskar. Það var hægt að taka prik og leika við þá og svo fóru þeir líka í sólbað þegar sólin braust fram úr skýjunum.. Þeir ruku allir til og fóru í jógastellingu og snéru hausnum á sér.. (sjá myndaalbúm) Það var alveg stórkostlega fyndið að sjá þetta. Hendurnar á þeim voru mjúkar og fæturnir líka (táslurnar) engar klær sá ég og útskýrir það líklega af hverju fólk fékk að fara svona nálægt þrátt fyrir að þeir væru að hamast í netinu.. Augun í þeim skærljósbrún.. alveg fyndin...
Síðan sáum við allskonar dýr td. Zebrahesta, Lamu, Nandu, Watussi, kengúrur, kanínur, míní-shetland-pony (ég meina ég hélt að Sh. pony væri sá minnsti og þá er til míní útgáfa.. common) og allskonar spennandi apa.. Hrein snilld. Þetta var vel skipulagður og yndislegur dýragarður. Vona að hann verði opinn í vetur þegar börnin koma...
Þegar dýragarðsferðin var búin þá fengum við okkur smá snarl aftur og héldum niður með ströndinni til að skoða Ales steinana sem eru steinar sem eru raðaðir upp í bátslaga form og eru frá um 600 árum ek. Þetta er líklega sólúr eða eitthvað slíkt.. Við gengum í gegnum smáþorp á leiðinin og sáum flott gufubað og flotta póstkassa en það virðist vera metnaður hjá fólki að skreyta póstkassana sína þarna.. Steinarnir voru flottir og litu út eins og neðri tanngómur í forsögulegri skepnu.. Síðan var haldið heim á leið eftir frábæran "Túristadag" í Suður Svíþjóð....
Þessa stundina er Valdi á hverfispöbbnum með Vagga en ég hafði ekki orku til að fara út úr húsi meir.. Enda ætla ég að ná góðum nætursvefni og vera dugleg að lesa grasafræðina mína á morgun..
Kveðjur frá Malmö
Um bloggið
Guðrún og Valdi
Bloggvinir
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (14.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 15
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 11
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
HÆ. gaman að lesa frá ykkur. Það er einn verslun sem er rétt við Staffanstorp sem er með lífrænt ræktað krydd og slíkt sem þið hafið gaman að skoða það er líka hægt að kaupa veitingar, kaffi og eitthvað að borða. líka er þar leikaðstaða fyrir börn. Staðurinn heitir Tyrup örtagård. heimasíða. www.tirupsortagar.se. Keðja Steinunn
Steinunn (IP-tala skráð) 2.9.2007 kl. 16:52
Takk fyrir síðast....
Elin (IP-tala skráð) 3.9.2007 kl. 12:14
Hæ hæ... rakst á síðuna ykkar fyrir tilviljun.... gaman að lesa það sem þið eruð að bardúsa þarna úti
Ég er líka í smá nostalgíu-kasti yfir þessum skrifum...... þetta rifjar upp hitt og þetta ... frá þeim tíma sem ég var að flytja til Svíþjóðar á sínum tíma... við bjuggum í Lundi í rúm 8 ár..og það er sko allveg rétt hjá þér...Lundur er yndislegur bær.... Gangi ykkur vel þarna úti... Hauskveðjur frá Íslandi...Fanney 
Fanney Björg Karlsdóttir, 4.9.2007 kl. 21:13
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.