Rigningardagur og grillveisla..

Ó já Steinunn... Honum Valda er margt til lista lagt en það að meðhöndla tusku er ekki einn af hans sterku hæfileikum.. En hann hefur nú verið liðtækur í öðrum hlutum td. að skrúfa saman húsgögn og svo sér hann alfarið um keyrslu og ratvísi á meðan ég sit eins og prinsessa og humma mig í gegnum vitlausar beygjur....

Ó nei Siggi... Við hugsum þér ekki þeigjandi þörfina, síður en svo... Við erum enn 150% þakklát fyrir það stúss sem þú gerðir fyrir okkur..  Þessi skítur sem er í íbúðinni er vegna matseldar hjá þessum þjóðum og er nánast ósýnilegur þar til við nánari athugun.... En ég veit að allavega Írakarnir brasa mikið og borða feitan mat og þá verður allt svona fitugt og skíturinn verður svona "everlasting" þegar hann festist þar í... Og þetta er ósýnilegt við fyrstu sýn... Og svo vissum við líka alveg að það var nú slatti séns tekinn á þessu... En við vonuðum bara það besta... En við erum búin að koma okkur ágætlega fyrir hér þar til annað finnst...

Annars byrjaði þessi dagur á því að ég mætti of snemma í skólann.. reif mig upp 6.50 til að mæta níu en átti þá að mæta 10:15!!!!... Á stundaskrá stóð 9.00 en svo við nánari athugun stóð í smáa letrinu 10.00 og svo sagði kennarinn að það væri 10:15 "sum sé 10 + 15 mín fyrir löglegar "seint" mínútur...... Common... Ég sat bara á skólatröppunum með kaffi og las Nyhedsavisen... BORING...

En síðan hófst dásamlegur tími í plöntuskoðun í Botanic gardens... Þetta er yndislegur garður með fullt af eldgömlum gróðurhúsum.. Hrein snilld... Þarna röltum við um með lúpurnar okkar og svona verða allir föstudagar á næstunni... Eftir tímann klukkan 12 þá skellti ég mér í strætó og leitaði að "bóksölu stúdenta" en ég var með frekar loðnar leiðbeiningar og henti mér út úr strætó í skyndingu þegar ég sá götuskiltið en ekki fann ég bóksöluna... Spurði þá ungan mann hvort hann vissi hvar hún væri og þá sagðist hann vera "lost" að leita að henni líka svo ég bara elti hann... Bóksalan var dásamleg.. ég hefði getað keypt upp heilan bókarekka þarna af blóma- og plöntulífeðlisfræðibókum.. Hrein snilld... En ég lét mér nægja tvær litlar orðabækur, bókina fyrir kúrsinn og eina aukabók um plöntulífeðlisfræði...  Mér tókst að taka strætó áfallalaust til baka á Nörreport og skellti mér bara í lestina heim þar sem það mígrigndi í Köben... Valdi var ásamt Vagga og Lilju  að hjálpa Rakel að koma restinni af búslóðinni sinni upp í íbúðina og síðan fóru þau í Coop Forum að versla fyrir grill sem var planað hjá Rakel um kvöldið... Ég aftur á móti kom mér bara upp í íbúð í mígandi rigningu og fór í algert þunglyndiskast þar sem enn  og aftur hvorug talvanna minna vill nettengjast.. Nú er ég búin að ýta á svo marga takka að það er borin von að þær nettengist nokkurn tíman... Arrrrrgggggg...

Grillveislan um kvöldið var yndisleg... Maturinn var alveg frábær, grillaðar kjúklingabringur og svínakjöt með kartöflusalati og tilheyrandi... Fengum svo frábærann ís í desert. Guttarnir hennar Rakelar voru ljómandi þægir og alveg yndislega sætir...  Restin af kvöldinu fór í að liggja yfir kortum og túristabæklingum þar sem við ætlum í dagsferð um Suður-Svíþjóð á morgun en Baldur og Elín eru að koma í heimsókn..

Hér sé stuð.. Kveðjur frá Malmö


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Af að lesa ævintýrin ykkar fær maður alveg fiðring í að fara í nám til útlanda Veit ekki hvort þið hafið áhuga á því að ég taki Fald krútt í vetur.  Það var verið að hækka gjaldið á Mið-Fossum og reynið þið nú að geta hvað það er komið uppí  Ekki nema litlar 25 þús. krónur á mánuði...  Það er rosalega fínt fyrir námsmenn sem eiga alltaf alltof mikið af peningum...  Sem sagt fyrir að vera með 2 hesta í fjóra mánuði t.d. kostar þá 200 þúsund.... Lovely!  Já ævintýrin gerast líka á Hvanneyri...

Bið kærlega að heilsa öllum hinum Hvanneyringunum þarna

Halla (IP-tala skráð) 1.9.2007 kl. 16:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Guðrún og Valdi

Höfundur

Guðrún og Valdi
Guðrún og Valdi

Fyrir framan Álfhólinn á Hvanneyri..

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (14.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 15
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 11
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband