30.8.2007 | 20:04
Skúra, skrúbba, bóna....
Dagurinn hjá mér fór í að klára eldhúsið... Náði nú eiginlega ekki alveg að klára en nóg til þess að við gátum borðað fyrstu máltíðina okkar í íbúðinni... Fórum að versla mat í Coop Forum sem er Risastór verslun, þurftum reyndar að kaupa potta og pönnu líka. Við elduðum svo hakk og spakk og fengum okkur ljúffenga osta í eftirrétt... Umm... Loksins gátum við líka keypt mjólk, brauð, morgunkorn, jógurt og slíkt... Nú þarf maður ekki að svelta þar til maður fer úr húsi. Td. í dag þá var ég matarlaus og nennti ekki út þannig að ég gróf upp einhver club súkkulaðismástykki síðan um borð í Norrænu og át þau í hádeginu.. jukkkkk.... Lítið að frétta af húsnæðismálum en Lilja forwardaði á mig auglýsingu á blocket í gær þar sem óskað var eftir leigjendum sem væru helst yfir 40 ára.. Jibbí.. loksins á maður séns... Lilja og Vaggi eru innan við þrítugt svo þau áttu ekki séns.. En ég er búin að senda tvö meil á þessa auglýsingu og fæ engin viðbrögð en þetta hljómaði samt vel.. Ég fékk hins vegar símtal frá konu sem var að tilkynna að hún væri búin að leigja út sína íbúð.. því miður... En fallega gert hjá henni að hringja því það virðist bara ekki vera til siðs hér að láta vita að búið sé að leigja út...
Jæjja best að fara að smyrja nesti fyrir skóladaginn á morgun.. Snilld.. smyrja nesti.. ummmm og ég get fengið mér morgunmat líka... hehe...
Kveðjur frá Malmö
Um bloggið
Guðrún og Valdi
Bloggvinir
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (14.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 15
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 11
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Mér lest svo til að hann bróðir minn sé svolítið stykkfrí í þessu öllu saman. Bæði í að skrúbbba og skúra og svo húsnæðismálin. Smá spurning varðandi Sunnu Mjöll. Fær hún bílpróf á afmælisdaginn sinn eða seinna? Kveðja að sinni Steinunn
Steinunn (IP-tala skráð) 30.8.2007 kl. 21:22
Það er dásamlegt að lesa þessar lýsingar, ég trúi vel ef þið hugsið mér þegjandi þörfina núna.
Kveðja Siggi
Siggi Þór (IP-tala skráð) 31.8.2007 kl. 17:49
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.