Fyrsti skóladagurinn í Kaupmannahafnarháskóla..

Jæjja ég lagði af stað snemma í morgun til að klúðra nú örugglega ekki neinu á fyrsta skóladeginum.. Ég var alveg viðbúin því að það yrði eitthvað klúður í miðasölunni, milljón manns í röð eða eitthvað.. En þá var bara engin biðröð en hins vegar var það sama óliðlega afgreiðsludaman og gaf okkur rangar upplýsingar síðast.. Ég var því við öllu búin þegar ég sýndi henni stúdentaskírteinið til að fá afslátt og hún skoðaði það vel og lengi og samþykkti loksins.. Púff... Hún hafði verið  með eitthvað múður áður um að það þyrfti að vera af einhverri ákveðinni gerð..  Jæjja en þá hafði ég misst af 7.42 lestinni og hinkraði því eftir 8.02 lestini... Það mátti ekki tæpara standa því ég fór út í Nörreport 4 mínútur í... Fann kennslustofuna og kúrsin hófst á klassískri tónlist áður en allir voru mættir.. Michael, gaur í bekknum, reyndi að ljúga því að mér að allir danskir skólatímar byrji svona hehe... Ég sagði bara að það væri nú næs ef svo væri... Kemur svo í ljós að við erum bara 6 í þessum kúrs sem er bara næs. Kennarinn óskaði víst eftir því að kenna kúrsinn á ensku eins og var gert í fyrra en honum var hafnað.. Sem er fúlt þar sem ég sat frá 9 til 4 og var ekki alveg með á nótunum... Kennarinn í verklegu kennslunni hún Signe talar ekki einu sinni góða ensku. En allavega þá hófst námskeiðið Plants á fyrirlestri og svo frá 10 og fram eftir degi þá vorum við í smásjárvinnu að skoða blómskipan plantna og teikna þversnið.. rosa gaman.. (í alvöru). Hins vegar þá var engin pása frá 13-16 og ég var komin með alvarlegt "rassæri" eftir setuna.. Hins vegar er skólinn svona milljón ára gamall og sjarmerandi, staðsettur í horninu á "Botanic Gardens" í miðri Kaupmannahöfn... Frekar mikið næs að vera í svona rosalega gömlum skóla.. Eftir skóla rétt missti ég af lestinni en það eru bara 20 mín á milli og lestin stoppar á Nörreport og er 50 mínútur yfir á Malmö Central... rosalega þægilegt.. Svo tekkur við 20 mín labb heim sem ég hef nú bara gott af.

Valdi skoðaði Alnarp garðinn vel í dag þar sem pása var í skólanum. Þetta er mjög gamall trjágarður sem yndislegt er að labba um. Skólinn var svo búinn snemma og þá var farið að hjóla um með Vagga en þeir fóru niður á strönd og skoðuðu líka Turning Tornsö sem er klikkaður turn hér á hafnarsvæðinu (Það er mynd af honum í albúminu).

En þegar til Malmö var komið þá kom ég við á Sopstationen og Valdi, Lilja og Vaggi hjóluðu til mín en þau voru á kaffihúsi á ströndinni.. Síðan röltum við heim til Vagga og Lilju og Lilja hjálpaði mér að skrá mig inn í MKB húsnæðismiðlunina... Ekki líklegt samt að það gangi upp þar sem það er hálfs til eins og hálfs árs bið eftir húsnæði á svona leigum. En við erum allavega búin að skrá okkur og formlega sækja um fjórar íbúðir ásamt um það bil 600 öðrum.. Djísus...

Ég þarf víst að fara inn til Köben í fyrramálið þar sem skólabóksalan er mjög svo gáfulega opin 10-12 og 13-16... Dö... maður er í tímum þá.. HALLÓ... hve ógáfulegt getur þetta verið? Þarf líka að kaupa mér RISA-skólabakpoka... Þarf að hafa yfirhöfn, tölvu, orðabók, kennslubók og det hele í töskunni svo tölvutaskan dugar alls ekki....

Jæjja kveðjur í bili frá Malmö


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hæ hæ, bara kvitta fyrir heimsóknina, gaman að lesa um ævintýrin! Verra með húsnæðið - það virðist ekki ætla af íslendingum á þessu svæði að ganga með húsnæði. Önnur vinkona mín í rosalegum vandræðum í Kaupmannahöfn!

-Elín.

Elín Björk (IP-tala skráð) 29.8.2007 kl. 11:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Guðrún og Valdi

Höfundur

Guðrún og Valdi
Guðrún og Valdi

Fyrir framan Álfhólinn á Hvanneyri..

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (15.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 13
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 9
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband