27.8.2007 | 21:22
Fyrsti skóladagurinn hjá Valda
ATH: Nýtt myndaalbúm kom inn í gær.. Gleymdi að láta vita af því. Einnig ef þið skrifið athugasemdir þá fæ ég meil um það svo við missum ekki af neinu... Þið getið kommentað á myndirnar og hvað sem er.. Endilega skrifið komment svo við vitum að einhver er að fylgjast með...
Fyrsti skóladagurinn hjá Valda hófst á því að hitta alla kennarana og það var nafnakall. Svo var heljarins fyrirlestur um svindl en svindl felst í þremur atriðum: Það er að vera "freerider í hópverkefnum, copy paste í ritgerðum án þess að geta heimilda og svo að vera með svindlmiða í prófum. Og þessu var sérstaklega beint til Austur-Evrópubúanna... hummmmm. Eftir það var hópnum skipt í nokkra minni hópa og farið var í ratleik um svæðið.. Aha.. bara svona eins og maður lenti í í Byggð og búskap á Hvanneyri... næs... Svo var myndataka en Valdi hafði sérstaklega farið í rúning fyrir það. Í hádegismatnum hitti Valdi Lilju, Matthildi og Hildi og svo var Vaggi með Lilju í skólanum þennan daginn (reyndar aðallega á bókasafninu að lesa um traktora). Eftir hádegið þurftu nemendur að kynna sig og sína í hverjum hóp... Þessi hópur er svona heldur í yngri kanntinum en Rakel og Valdi eru algerir aldursforsetar á svæðinu.. Við hittum nokkra krakkana í Mollinu síðdegis og þau eru bara unglingar.. En þetta er samt á mastersstigi en það er misjafnt milli landa hvenær fólk klárar BS, sumar þjóðir eru bara fyrr á ferðinni. Valda líst bara ljómandi vel á námið, skólann og skólafélagana..
Ég aftur á móti átti horror morgun í húsnæðisleit... Ekkert gekk upp sem ég reyndi.. Ég var komin lengst upp í Arlöv á einhverja skrifstofu en þá vildu þau ekkert við mig tala því ég var ekki með sænska kennitölu.. Kom svo í ljós þegar heim var komið að það skipti ekki máli... En ég endaði bara í mígandi rigningu uppi í Arlöv og rataði ekki heim og var bara á stuttermabol... Stelpuskjátan á húsnæðisskrifstofunni neitaði að hringja á leigubíl fyrir mig því hún væri farin í mat... Common... Mígandi rigning úti... Ég brosti breitt til hennar og sagði Takk Takk BELJA... En hún brosti blítt á móti og hélt ég væri bara að segja takk takk... Æi hvað maður getur verið barnalegur stundum... En ég var bara alveg runnin út á geðheilsu... hafði líka eitt drjúgum tíma í að reyna að ná út pening fyrir leigunni úr bönkum... Ekkert gekk... Ég fór í alla hraðbanka og tók út allt sem ég gat.. Náði upp í 90 þúsund eftir hádegið og Valdi gat svo tekið út rest en ég var búin að MAXA út allar úttökuheimildir á öllum kortum fyrir daginn.... Þar sem við vorum runnin út á tíma með að finna nýtt húsnæði þá neyddumst við bara til að borga Írakanum tveggja mánaða leigu út í hönd.. En ég náði að fá konuna hans til að skrifa kvittun sem ég held að hafi verið mistök af hennar hálfu en við erum núna allavega með kvittun fyrir leigu í höndunum sem er hægt að nota gegn þeim ef þau eru með múður...
Af einhverjum ástæðum batnaði þó geðheilsan við þetta og nú erum við allavega búin að kaupa okkur 2ja mánaða frið.. Eigum bara eftir að þrífa eldhúsið og þá verður íbúðin alveg ljómandi fín... Svo það er nú ekki vandamál.. Við Valdi skelltum okkur í Burlov Center sem er klassískt Moll og röltum þar um. Ég fór í H og M og keypti mér topp og við keyptum okkur sænsk símanúmer.. Þar af leiðandi eru gömlu númerin out og ný komin í staðin. Man þau ekki núna en ég læt vita bráðum.. Þau eru löng... Síðan freistuðumst við til að kaupa okkur GPS tæki (Garmin) svona til að rata... Ógeðslega kúl... Maður bara stimplar inn hvert við erum að fara og bingó.. Beygið til hægri og beygið til vinstri.. Snilld... Röddin á reyndar erfitt með að bera fram sænsku götunöfnin... Ég ætla að taka græjuna með á morgun til Köben og reyna að finna hvar ég á að mæta í skólann með henni.. hehe..
Við fórum svo á ítalskan veitingastað sem var næs og svo komu Vaggi og Lilja um kvöldið. Þau eru netlaus að leita að húsnæði svo þau kíkja á netið hjá okkur þegar þau geta..
Jæjja best að koma sér í bólið þar sem ég þarf að mæta snemma á brautarstöðina í fyrramálið því fyrsti skóladagurinn er á morgun (Held ég).
Kveðjur frá Malmö
Um bloggið
Guðrún og Valdi
Bloggvinir
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (14.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 15
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 11
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Þetta eru nú meiru hrakfarirnar hjá ykkur varðandi húsnæðið. Það er sænskur stákur í skólanum í Alnarp sem heitirMangús. Hann á isl. kærasta og kann íslensku, var að vinna í Garðheimum í sumar og ef að þið viljið þá er ekkert mál að fá hann til að hjálpa ykkur ef að þið þurfið. hann er með netfang magnus.goranson@gmail.com. Þið segist bara þekkja mig og þá hjálpar hann ykkur eftir bestu getu og það er líka gott að halda honum við íslenskuna. Við og pabbi og Siríður förum til Ítalíu 8. sept og skálum fyrir Valda 10. sept. Hér er orðið kalt á nóttunni og farið að fryst inn til landins á nóttunni. Kveðja að sinni til ykkar og Rakelar. Steinunn
Steinunn (IP-tala skráð) 27.8.2007 kl. 22:31
það hefur verið gaman hjá pabba í ratleiknum
við segjum öll hæ. Ég er ekki búin að skoða mikið annað en bara þetta svo ég ætla bara að halda áfram að skoða.

Bæ, Bæ sé ykkur seinna. Sunna
Sunna (IP-tala skráð) 29.8.2007 kl. 17:32
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.