26.8.2007 | 20:48
Ljúf helgi
Við tókum því nú bara rólega yfir helgina.. Nenntum ekki að hafa áhyggjur af neinu enda lítið hægt að gera um helgi. Á laugardaginn þá fór Valdi í rúning og lítur núna sómasamlega út fyrir fyrsta skóladaginn. Við fórum í Ikea og Sopstation (Góði hirðirinn) og vorum bara að dóla okkur.. Ég er alveg að fíla Sopstation. Ég fann fallegt gamalt trog fyrir 2000 kr sem færi vel undir lopann minn en ég verð víst að hemja mig því við getum ekki flutt endalaust dót heim. En ég keypti lítinn bakka í stíl við aðra sem ég á heima fyrir 50 kall. Fann tvær glerskálar, stærri og minni, og ég gerði þau mistök að hugsa mig um og þá var sú stærri farin... Darn... Æi mig vantaði ekki skálar hvort sem var..
Restin af deginum fór nú bara í að prjóna rósaleppaprjónið mitt og sofna í sófanum... Um kvöldið fórum við á Pöbb með Lilju og Vagga sem var rosalega næs.. Ágætt að sitja úti og sötra rauðvín og spjalla..
Á sunnudeginum þá fórum við á Lomma markaðinn sem er markaður sem Lions heldur í Lomma commune. Það var ótrúlega fyndið. Þvílíkt magn af drasli, góðu og gagnslausu. Húsgögnin voru flott sum. Valdi fann skenk sem okkur dauðlangaði að kaupa en þar sem við erum nánast heimilislaus þessa dagana þá ákváðum við að vera skynsöm og sleppa skenknum.. En hann kostaði samt nánast ekki neitt.. Ég sá líka eintak af Clariol (hét það ekki Clariol eða var það Clarins?) fótanuddtæki.. Ó my god... ég hef ekki séð svoleiðis í hundrað ár...
Ég ætla að stússast í húsnæðisvandamálunum okkar á morgun. Ég held að ég eigi ekki að mæta í skólann.. Heimasíða skólans er að mestu á dönsku þó kúrsarnir eigi að vera á ensku. Upplýsingarnar sem ég fæ eru alveg hægri og vinstri, út og suður.. Ég allavega held ég eigi ekki að byrja fyrr en á þriðjudag... Auk þess þá sýnist mér að sveppakúrsinn sem ég er að fara í henti mér ekki sem þýðir að ég er í einu fagi til áramóta... Hummmm hvernig það fer með námslánin vil ég ekki hugsa um....
Jæjja best að fara snemma að sofa... fyrsti skóladagur Valda á morgun..
Kveðjur frá Malmö
Um bloggið
Guðrún og Valdi
Bloggvinir
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (15.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 13
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 9
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.