Þreyttur dagur

Ó sumir dagar eru bara ekki að virka...

Við vöknuðum í morgun og ætluðum að þrífa okkur í gegnum restina af íbúðinni (fyrir utan eldhús) og þegar ég var byrjuð á fullu þá rákum við augun í miða frá leigusalanum sem hafði komið hér inn til að sækja póstinn sinn (hummmmmmm.....) Þá var hann að rukka okkur fyrir internet og rafmagn sem átti að vera innifalið... NÚ ER KOMIÐ NÓG... Við bara nennum ekki að standa í þessu lengur að hafa leigusala sem skilur ekki bofs í ensku... Loksins þegar íbúðin er að verða alveg frábær... Svo ég labbaði mig niður í búðina hans og reyndi að tala við hann en hann var upptekinn og ætlaði að koma klukkan sjö.. Sem og hann gerði og við náðum nú einhverri lendingu en bara til að gefa okkur tíma til að finna aðra íbúð.. Já líklega endum við með að fara héðan út eftir mánuð eða tvo... Glatað... En við bara nennum þessu ekki lengu.. Gaurinn er með lykil sem hann notar hér inn og út og um við höfum nokkrum sinnum mætt konunni hans með fullt af drasli sem hún hefur sótt hingað... Fínt að losna við draslið ennnnnn..... common.....

Þannig að við erum byrjuð að leita að öðru húsnæði. Kemur betur í ljós á mánudaginn hvernig þetta fer.  Við skruppum bara í bíltúr til Rakel og guttanna og skiluðum vindsænginni sem við fengum lánaða fyrstu  nóttina hér. Við keyptum handa henni rafmagnspumpu þar sem Valdi var í tvo tíma eins og físibelgur að blása þetta upp!!! Síðan bara fórum við á rúntinn og svo heim að klára stofuna sem er orðin svo rosalega fín. Vaggi og Lilja ætluðu að hitta okkur um kvöldið til að fara á flugeldasýningu í tilefni af lokadegi Malmö festival en nýja sænska númerið þeirra virkaði ekki svo við náðum ekki saman það kvöldið.. Við Valdi fórum þá bara ein á röltið sem var ljúft, fullt af fólki og mikil stemning. Einhverjir brjálaðir tónleikar í gangi á Stóra torgi en við fórum á veitingastað á Litla-torgi sem að mínu áliti var ömurlegur en Valdi fékk frábæra nautasteik og ég fékk svínakjöt sem var "cooked to death"... sum sé algerlega ofsteikt og ca 1 skeið af sósu með og disk af hráum frönskum... EKKI að gera sig... á leiðinni heim kom ég við á Burger King og fékk mér borgara enda var ég sársvöng... Rétt áður en við komum í götuna okkar þá ákváðum við að prófa hverfisbarinn og fengum okkur einn bjór og sátum úti í ljúfu veðri en hins vegar var mikil truflun af hjónabandserfiðleikum rússnesks pars sem sat fyrir aftan okkur... konan var gargandi og kallinn hljóp alltaf heim yfir götuna og kom aftur... Drama, drama, drama... En jæjja við erum allavega búin að prófa hverfispöbbinn..

Og svona bara til að angra annars tæpa geðheilsu mína þessa dagana þá vilja fartölvurnar mínar tvær hvorug tengjast netinu hérna... Veit ekki hvort ég nenni að gera neitt í því fyrr en í nýrri íbúð.. vinn bara á tölvunni hans Vald á meðan.. Annars virðast vera álög á mér með húsnæðismál erlendis. Þegar ég flutti til USA þá kom skólinn mér í samband við konu frá Arizona sem var að byrja í skólanum og ætlaði að leigja hús og vildi leigja herbergi út frá sér... Eftir að hafa beðið eftir henni í 3 daga á hóteli í Denver þá hitti ég hana fyrsta skóladaginn.. Ég eins og asni með tvær stórar ferðatöskur í skólanum. Ég fór svo með henni heim og kom mér fyrir í fínu herbergi og allt leit vel út þar til ég lagði höfuðið á koddann... Þá bankaði hún á hurðina og sagðist vera hætt við að fara í skólann og ætlaði að flytja aftur til Arizona.. Úpps... Ég aftur í skólann með ferðatöskurnar daginn eftir... Og húsnæðislaus... En það reddaðist reyndar ljómandi vel þann daginn svo ég vona að þetta leysist allt hjá okkur Valda með tíð og tíma..

Jæjja lítum á björtu hliðarnar... Þetta getur bara batnað..

Kveðjur frá Malmö


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kjartan Pálmarsson

Baráttukveðjur úr Kópavogi til ykkar í Malmö

Kjartan Pálmarsson, 24.8.2007 kl. 23:12

2 identicon

Hæ hæ,

Vildi bara stimpla mig inn. Þetta hljómar allt hálf bagalega þarna en það er örugglega betra að vera tvö í þessu en ein eins og í Denver :-)

Ég er í marathon vefverkefni og þarf að sinna því...

bestu kveðjur,

Hildur.

Hildur Bjarnadóttir (IP-tala skráð) 26.8.2007 kl. 16:03

3 identicon

Halló, ég er mætt á svæðið og á von á stríðsmönnunum mínum á morgun. mér þykir mjög leitt að þetta skuli vera svona leigusali...Siggi ber alla ábyrgð á þessum samningum . Ju minn eini!

Þetta var nú svipað þegar við komum hingað fyrir 2 árum, ég ólétt og með Stefán 2ja ára, enduðum á að sofa í einhverjum smá morknuðum sumarkofa með útikamri fyrsta mánuðinn....óska engum slíkrar upplifunar. Þetta hlýtur nú að bjargast...bara finna sér eitthvað annað...það eru allir að auglýsa núna.

Heyrumst fljótlega...Kv Hildur

Hildur Stefánsdóttir (IP-tala skráð) 26.8.2007 kl. 20:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Guðrún og Valdi

Höfundur

Guðrún og Valdi
Guðrún og Valdi

Fyrir framan Álfhólinn á Hvanneyri..

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (15.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 13
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 9
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband