Malmö Festival

Jæjja við erum enn á kafi í þrifum.. En þetta er allt að koma... Á hverjum degi förum við í Góða hirðin og Ikea... Við algerlega lekum út peningum þessa dagana sem er grátlegt... En kaupum allt það ódýrasta og eigum eftir að kaupa mikið í Góða hirðinum sem er mjög ódýr...

Í gær kíktu Lilja og Vagn til okkar en þau búa þessa dagana bara einni götu frá okkur. Við röltum okkur niður í bæ og kíktum á Malmö Festival og stemningin var eins og á menningarnótt, tónleikar og allskonar uppákomur tívólí og læti, og auðvitað frábært veður. Við fórum á ítalskan veitingastað sem var bara næs og síðan á Írskan bar. Komum svo snemma heim og héldum áfram að taka til.

Hins vegar er alveg fáránlegt að við rákumst á Rakel og guttana í Ikea og svo Lilju og Vagga á götuhorni... Common.. við þekkjum þrjá aðila í Malmö og við hittum þau öll á förnum vegi sama daginn..

Jæjja við lofum að setja inn myndir bráðum en þær safnast bara fyrir í tölvunni hjá okkur. Skrifstofan okkar er að smella í lag en Valdi var að klára að skrúfa saman stólinn minn og nú á bara eftir að koma á nettengingu í herberginu en tölvan mín hefur ekkert sérstaklega verið að virka í netsambandi...

PS. Geðheilsan hjá Valda er að skána en hann þolir ekki hitann og ég er víst að gera hann alveg geðveikann á þessum þrifum og innkaupum.... úpps...  Annars er hann duglegur að skrúfa saman húsgögn því hann þarf ekki að skrúbba og skúra á meðan hehe...

Kveðjur frá Malmö


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Mundu að senda mér heimilisfangið ykkar, sendu það á hvanneyrarnetfangið. Við komust ekki afstað til Færeyja í dag vegna þoku, þannig að eins og er eigum við að fara kl 7.15 í fyrramálið. Sjáum svo til hvernig veðrið verður þá. En heimilisfangið takk...

Kv. Elin

Elin (IP-tala skráð) 22.8.2007 kl. 19:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Guðrún og Valdi

Höfundur

Guðrún og Valdi
Guðrún og Valdi

Fyrir framan Álfhólinn á Hvanneyri..

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (15.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 13
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 9
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband