Ikea, Rúmfatalagerinn(Jysk) og Góði hirðirinn...

Jæjja við erum sum sé þessa dagana á fullu í að þrífa okkur í gegnum ógeðslega skítuga íbúð... Ég er eiginlega svo fegin að kallinn tók rúmið og meira dót því það er allt svo ógeðslegt hérna... Við versluðum í Ikea í gær fyrir heilar 50 þúsund krónur og þar af var æðislegt rúm... Ummmmm sváfum í okkar eigin rúmi í nótt í hreinu herbergi með nýrri kommóðu og fatahengi... Ég er svo gott sem búin að skúra mig út úr baðherberginu sem er að verða rosalega fínt.. Það ótrúlega er að baðkarið, vaskurinn og klósetið voru bara nokkuð mikið þrifaleg og sturtan svínvirkar með rosalegum krafti ólíkt á Hvanneyri þannig að það skorar nú nokkur stig hjá mér... Annars vorum við svolítið fyndin í gær þegar við komum frá IKEA, en við ætluðum sko ekki að borga 5000 íslenskar fyrir heimsendingu svo við bundum rúmið 140X200 á þakið á Hiluxinum... Fólk glápti á okkur eins og við værum fávitar... Vildi óska að ég hefði haft myndavélina mína... Ikea, Rúmfatalagerinn (Jysk) og Góði hirðirin eru öll í göngufjarlægð frá okkur. Góði hirðirinn hérna er alveg frábær. Risastórt rými með fullt af flottu dóti, því miður fundum við ekki rúm þar en það er margt sem við getum reddað okkur með þar... Valdi þurfti að draga mig út á hárinu mér fannst svo gaman að skoða þarna... Fer bara aftur á hans.. hehe.. Eldhúsið er enn bara lokað rými hjá okkur því við höfum ekki geð í okkur að fara þar inn strax... Matarleyfar og fullir skápar af ógeðslegu drasli... Við þurfum bara að fara að manna okkur upp í að tala við David (Leigusalann) því hann talar svo takmarkaða ensku að öll samtöl eru hrein steypa... Ég þarf að verða mér út um túlk til að taka með því ég ætla að fá hann til að fjarlægja miklu meira af þessu ógeðslega dóti.... Eins og áður segir þá er staðsetningin á íbúðinni frábær... Hér er allt til alls í göngufjarlægð og við löbbuðum á Central station í gær þaðan sem ég tek lestina til Köben og það var ca 10 mínútna labb í gegnum bæinn og mikið mannlíf... Hér er líka í gangi eitthvað festival svo það er stemning alls staðar. Í gærkvöldi fórum við út að borða á næs stað, maturinn var rosalega góður og við borguðum 3500 íslenskar fyrir 2 stórar máltíðir, tvö stór rauðvínsglös, kókglas og bjór. Hér er allt svo ódýrt.. Á veitingastaðnum þá sáum við tvo stráka með litla Pug hvolpa. Ó my god þeir voru svo sætir, SVO SÆTIR.... ég missti mig alveg...   Á leiðinni heim komum við svo við í Coop sem er matvöruverslun hér í mínútu fjarlægð. Við gengum um lengi og skoðuðum verðin. Eitt bréf af bacon fyrir 80 kr íslenskar sem hefði kostað 600 kr. heima... Og Ostarnir maður.. vá... þvílíkt úrval og þvílíkt verð... Ég sá gulmygluost sem ég keypti fyrir afmælið hans valda á 3500 kr heima á 400 kall hér... wowww..... Hér er alveg hægt að hlaupa í spik meira en nú þegar er orðið eftir kyrrsetuvinnu sl. tvö sumur...

Jæjja látum þetta gott heita í bili... Verðum að halda áfram að vinna okkur í gegnum íbúðina.. Ég hef ekki haft tíma til að setja inn myndir en það gerist vonandi um helgina...

kveðjur frá Malmö


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Gott hjá ykkur og gangi ykkur vel

Bestu kveðjur úr fallegu sveitinni

Kv Daði

dadi lange (IP-tala skráð) 21.8.2007 kl. 20:22

2 identicon

Ohh en gaman að þurfa að þrífa hátt og lágt húsið þarna úti líka....  Vonandi tekur kallinn sem mest af dóti svo þið þurfið ekki að hanga með eitthvað ógeðsdót hjá ykkur.  Þar sem ég bjó í NorðurNoregi þá þurftum við einmitt að þrífa virkilega viðbjóðslegt húsið sem við bjuggum svo í 9 saman.  Ef þetta er eitthvað í líkingu við það þá vá hvað ég vorkenni ykkur !  Það sem var eiginlega subbulegast við það var herbergi með rauðri ljósaperu og fullt af klámblöðum og guð má vita hvað fleira leyndist þar.  Þá var nú betra að þrífa ísskápinn sem reyndar var á leiðinni að labba út hehe...

Ohh hvað þetta hlýtur að vera gaman hjá ykkur að öðru leyti:)

Bestu kveðjur eyrinni, Halla

Halla (IP-tala skráð) 21.8.2007 kl. 21:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Guðrún og Valdi

Höfundur

Guðrún og Valdi
Guðrún og Valdi

Fyrir framan Álfhólinn á Hvanneyri..

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (15.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 13
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 9
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband