20.8.2007 | 08:04
Komin til Malmo
Jæjjaþá erum við komin til Malmo..
Ferðalagið var stórskemmtilegt. Eftir "létt" kveðjuhóf hjá Benna og Höllu kvöldið áður en við fórum út þá var lagt af stað á Seyðisfjörð klukkan níu um morguninn.. Við tók tveggja og hálfs tíma bið í bílaröð fyrir utan Norrænu sem var frekar boring... Svo máttum við Valdi ekki fara saman um borð því það mátti bara einn bílstjóri fylgja bílnum... glatað... En jæjja loksins fundum við hvort annað inni á herbergi og fórum að rúnta um skipið... Þetta er nú meiri hallærisdallurinn.... "Shopping area" samanstendur af einni búð sem er opin og lokuð á asnalegum tímum.. Gangarnir voru fullir af ferðafólki sem gisti ódýrasta dekkið og kom sér fyrir alls staðar annars staðar... Ég er búin að fatta nýja tegund af fólki sem heitir "Táfýlufólkið" það er fólk sem ferðast ódýrt og TEKUR allt sem það kemst yfir til að græða... Þetta hefur ekkert með það að gera að ferðast ódýrt sem er bara skynsamlegt og ekkert annað... þetta er þegar fólk fer yfir línuna með það að ferðast ódýrt.. Það var heil fjölskylda búin að koma sér fyrir á 8. dekki með svefnpoka, prímus og matargræjur og búið að smala saman sólstólum til að búa til skjól.. Þarna grilluðu þau mat og sváfu... Þrátt fyrir að alls staðar stæði stórum, skýrum stöfum að þetta mætti ekki... Ég kynntist svona fólki í gegnum landvörsluna og það er frekar pirrandi. Einnig er þetta fólkið sem fer úr fjallgönguskóm sem það hefur verið í í 3 daga innan um annað fólk.. Jukk....
Jæjja við fórum bara snemma að sofa fyrsta kvöldið, það var mikill veltingur á skipinu og orðið erfitt að labba og halda glösum eða dóti á borðum... Íha.. mér fannst þetta ljómandi gaman... Daginn eftir vöknuðum við eldsnemma til að kíkja á Færeyjar... Það var gaman að fylgjast með þegar siglt var inn og ég tók nokkrar myndir af Þórshöfn... Rosalega krúttlegur bær... Svo bara fórum við aftur að sofa... Restinni af deginum eyddum við á Viking club með prjóna og kaffi... Rosa næs og afslappandi að sitja svona í lyftutónlist og algerum heiladauða... Síðdegis kynntumst við íslenskum strákum sem voru að fara í nám, allavega tveir þeirra. Ég er loksins búin að ná rósaleppaprjóninu sem er heldur snúið en ég er búin að ná tækninni sem er mikil hamingja. Svo varvar stoppað í Hjaltlandseyjum sem við Valdi köllum Pony Island (Shetland pony, smáhestur) Ég tók upp símann og bjallaði í Fríðu landvörð sem hafði unnið með mér eitt sumar fyrir tveim árum í Skaftafelli.. Hún nefnilega lenti í því að verða eftir á Hjaltlandseyjum og þurfa að dveljast þar í heila viku með Kærastanum sínum... Það var víst lítið um að vera nema "Go down to the harbor ".... Ég bara varð að bjalla í hana hehe... Um kvöldið hittum við drengina aftur sem við kynntumst fyrrr um daginn. Við sátum með þeim á Víking Club um kvöldið þar sem hallærislegasta hljómsveit í heimi var að spila.. Þeir lögðust reyndar í létt fjárhættuspil "21" en komu út á sléttu eftir að hafa spilað allt kvöldið.. gott hjá þeim... Við Valdi hins vegar drifum okkur temmilega snemma að sofa.. Við komum svo ekki til Hanstholm fyrr en 18:30 og það tók einn og hálfan tíma að komast út úr skipinu svo logsins lögðum við af stað... Fundum svo hótel eins og fyrr segir...
Við erum núna komin til Malmö. Íbúðin er á frábærum stað og stór. En þar enda líka kostirnir.. Megnið af húsgögnunum tók kallinn með sér nema sófasettið í stofunni sem er ógeðslega skítugt. Þrifnaðurinn hjá konunni hans er brandari enda skildi hún skúringavatnið eftir í fötunni og allskonar drasl í skápum... Við erum svona að vinna okkur í gegnum íbúðina í þrifum... Þvílíkur skítur og guði sé lof fyrir leysigeislann sem ég tók með að heiman, hér hefur ekki verið þrifið almennilega í 12 ár síðan þau fluttu inn.. En með talsvert miklum þrifum og innkaupum í Góða Hirðinum, Jysk (rúmfatalagerinn) og Ikea þá er nú alveg hægt að gera þetta vel búsetuhæft. Það kom síðan í ljós sem betur fer að Valdi byrjar ekki í skólanum fyrr en næsta mánudag. Þannig að við höfum heila viku til að gera þetta búsetu hæft og kaupa húsgögn.. Vá hvað ég var glöð að þurfa ekki að gera þetta ein... Ég er orðin svolítið leið á því að skúra mig út úr húsum og íbúðum undanfarna daga... Gersamlega búin að fá nóg... Jæjja nú er best að fara að vekja Valda til að fara í Góað hirðirinn... Og hefja massaþrif..
Kveðjur frá Malmö
Um bloggið
Guðrún og Valdi
Bloggvinir
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (15.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 13
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 9
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Hæ. Gott að þið séuð komin heilu og höldnu a áfanga stað. Vona að þið hafið það sem allra best og getið lært inn á umhverfið í vikunni, fundið leiðina í skólana og allt það. Bið að heilsa Rakel þegar að þið hittið hana næst. kveðja Steinunn
Steinunn (IP-tala skráð) 20.8.2007 kl. 21:54
Hæ og velkomin til Sverige. Gaman að lesa þessa skemmtilegu ferðasögu og já Geisli er töfraefni sem bjargar öllu!!
Veistu Náttúrufræðifélagið var að henda fullum gám af Náttúrufræðingnum!!
Sunna Birna (IP-tala skráð) 20.8.2007 kl. 21:55
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.