15.8.2007 | 10:45
Hverafuglar og fleira...
Jæjja þá er síðasti dagurinn á Egilsstöðum runninn upp... Í stað þess að pakka og þrífa íbúðina eins og geðsjúklingur þá er ég bara að chilla á kaffihúsi.. íha... Hér fæst besta Sviss Mokka sem ég hef fengið... Annars standa bara miklar útréttingar fyrir dyrum.. pósthús, banki, tryggingamál og fleira. Ég er líka að ná í David sem leigir okkur íbúðina úti. Smá skerí að það kemur bara símsvari á sænsku hjá honum svo ég skil ekki bofs... Ég er farin að rifja upp ýmsar skerí sögur um svik og pretti hehe.. Heyrði til dæmis af íslenskri hljómsveit á tour í USA sem var búin að panta rútu og skrifa undir tilheyrandi pappíra en svo var engin rúta og ekkert fyrirtæki.. úpps...
Ég lét verða af því í gær að kaupa tímaritið Náttúrufræðinginn 1. -47. árgang. Sum sé frá 1931 og upp úr... Vantar náttúrulega nýjustu.. Ó þetta tímarit er stórkostlegt... Alveg stórkostlegt.. Ég ætlaði nú ekki að tíma þessu enda kostaði bunkinn um 28 þúsund krónur en mig hefur dreymt um að eignast Náttúrufræðinginn lengi og þar sem ég fékk Blikastaðastyrkinn þá hef ég ákveðið að smá hluti af honum (sem er ekki farinn nú þegar) megi fara í bókakaup.. Ég hringdi í Braga fornbókakaupmann á Klapparstígnum og fékk það staðfest að þetta væri "Kristilegt verð" eins og hann orðaði það.. Ekki of hátt og ekki of lágt.. Svo lá ég bara yfir blöðunum í gærkvöldi í stað þess að pakka... Rakst á ýmsar fróðlegar greinar meðal annars þar sem kenningin um Hverafuglana er afsönnuð. Hverafuglar eru sum sé fuglar sem geta synt á hverum í sjóðandi vatni svo hefur eitthvað spunnist upp á söguna og sagt var að ekki væri hægt að sjóða fuglana nema í köldu vatni. En ég las grein um kennara sem fór með fjölskyldu sinni að hver og var að vonast til að sjá hverafuglana.. Jú viti menn þarna syntu þeir um í búblandi vatninu.. allir flugu burtu nema einn sem kom í ljós að væri urtönd. En við nánari athugun þá var vatnið einungis um 37-38 gráðu heitt og það sem menn héldu að væri suða voru bara loftbólur.. Dö.. þar fór góð saga... Svo var önnur grein sem afsannaði kenninguna um Lagarfljótsorminn... En best að eyðileggja ekki fleiri góðar sögur... En allavega þá eru nokkrar mjög áhugaverðar greinar fyrir mig í grasafræðinni. Hrein snilld.
Jæjja nú skelli ég inn myndum af Jakobi í nýju peysunni.. Mér fannst hann rosalegur gæi í þessu... Vona að honum finnist það líka enda er ég búin að hafa mikið fyrir þessari peysu. Hún átti að vera svo einföld en þá var þetta munsturprjón sem ég er ekkert rosalega sleip í en ég æfðist þó allavega í því fyrir vikið. Nú ætla ég að fara að kaupa lopa til að prjóna á Sunnu og Lindu og kannski hundinn líka hana Freyju... Sjáum til..
Jæjja næsta færsla verður líklega um borð í bátnum eða í Svíþjóð...
Um bloggið
Guðrún og Valdi
Bloggvinir
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (15.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 13
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 9
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Rosalega er þetta flott peysa. Þú ert snillingur greinilega GB! Góða ferð út í heim... Ég á eftir að sakna þess að geta ekki farið á Álfhólinn þegar ég fer á Hvanneyri, en þið snúið nú vonandi heim aftur að ári liðnu!
Elin (IP-tala skráð) 15.8.2007 kl. 15:15
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.