14.8.2007 | 10:40
Mývatnssveit og Borgarfjörður eystri
Jæjja.. það er svo sem ekki eins og netsamband liggi á lausu hér fyrir austan. GSM samband er heldur ekki í íbúðinn okkar svo við þurfum að standa úti á svölum til að tala... En ég er sest inn á kaffihús áður en börnin vakna til að henda inn einni færslu..
Hér er búið að vera meiriháttar gaman. Á laugardaginn fórum við inn í Borgarfjörð eystri, öll nema Linda sem fékk að vera eftir hjá Álfsól vinkonu sinni. Akstursleiðin er nú ekki fyrir lofthrædda og auk þess voru vegaframkvæmdir í gangi. Á leiðinni stoppuðum við í sjoppusjálfsala sem er rekinn af Kidda í Vídeóflugunni hér á Egilsstöðum hún er bæði vind og sólarknúin skilst mér... og algerlega "In the middle of nowhere" Hrein snilld. Í Borgarfirði var bara krúsað um og skoðað og auðvitað stoppað í Bakkagerði og farið í Álfastein. Þar var líka farið í fuglaskoðunarhúsið niðri við höfn. Við ókum svo í gegnum Bakkagerði og litum á lundaslóðir í kringum höfnina.. Þetta er nú sætasta höfn sem ég hef séð. Ég sagði börnunum ýmsan fróðleik um lunda þar sem ég þykist nú sérfróð eftir að hafa gædað á lundaslóðir á Tjörnesinu hér um árið. Td. þá er svo gott sem vonlaust að þekkja kynin í sundur og þeir eru bara með holur fyrir kynfæri og nudda þeim saman við æxlun. Eina leiðin til að kyngreina lunda er að kryfja hann. En einu fuglarnir sem hafa typpi eru endur. Annars missti ég mig í blómamyndatökum þarna við höfnina og klifraði ansi hátt upp í kletta til að mynda burnirót og fleiri plöntur og gleymdi lofthræðslunni um stund.. Þegar heim kom þá vildi Linda ekki fyrir sitt litla líf yfirgefa Álfsól svo við hin fórum og fengum okkur hreindýraborgara sem fást hér í Hamborgarabúllunni.. Hrein snilld.. Ummm þeir eru svo góðir.. Þar er líka ágætis þjónusta svona almennt.
Á Sunnudeginum þá skutluðumst við inn í Mývatnssveit í hálfgerðu skítaveðri en sveitin er alltaf jafn falleg. Ég held ég hafi um það bil gert út af við krakkana af fróðleik og upplýsingum.. En Sunna var kurteis og hlustaði samviskusamlega meðan Linda og Jakob bara fífluðust... Ég tók líka törn í að sannfæra börnin um að þau ættu að verða landverðir sem er náttúrulega besta starf í heimi. Eftir rúnt um vatnið og gott labb í Dimmuborgum kræklóttastíginn þar sem ég dró Jakob ofan í allar holur og gjótur sem ég vissi um, þá fórum við og fengum okkur að borða í Gamla bænum.. Og þar fékk ég crepes pönnuköku sem var ógeðslega vond.. sá staður er nú alltaf eitthvað hálfgert klúður greyið..
Á mánudeginum þá var nú bara sofið út og tekið til og dúllast eitthvað. Reyndar var Jakobu skutlað inn á Seyðisfjörð til að hitta Bárð Jökul vin sinn af Hvanneyri sem er þarna hjá pabba sínum núna. Hann býr í ævintýralega krúttlegu húsi við lónið á Seyðisfirði. Þeir dunduðu sér þarna allan daginn saman við að dorga og leika sér. En hvernig Valda datt í huga að senda mig keyrandi þennan lífsháskaveg er mér alveg óskiljanlegt.. Þetta var bara lofthræðslutripp.. Shitt.... Ég reyndi að bera mig mannalega með Jakob í bílnum en ég held hann hafi alveg séð í gegnum mig.. hehe..
Eftir að hafa sótt Jakob síðdegis (Valdi keyrði) þá fórum við út að borða á Kaffi Nílsen sem var æði.. Rosalega góður matur og góð þjónusta. Þetta var nú síðasta kvöldið með grísalingunum en þau fara klukkan hálf fjögur í dag. Svo Valdi ákvað að vera grand á því og bjóða okkur út að borða. Næss.. Síðan fórum við í bíltúr hringinn í kringum Lagarfljótið... Og svo heim til að klára að prjóna peysuna sem ég var að prjóna á Jakob.. eins gott að það náðist að klára hana fyrir brottför... Ég mun taka mynd af honum í henni áður en hann fer þegar hún er þornuð... Jæjja eins og áður segir þá fara grísalingarnir í dag og þá höfum við Valdi einn dag til að ganga frá íbúðinni.. Ég hef nú ekki miklar áhyggjur.. En hins vegar er enn eftir eitthvað úthringingarstúss td. að hringja í David sem á íbúðina sem við leigjum.. Við vorum ekki alveg að skilja enskuna hjá hvort öðru í síðasta símtali... Svo símtalið var eins og úr einhverri lélegri Mr. Bean mynd... Jæjja sjáum hvernig það gengur..
Kíkið í myndaalbúmið.. Þar eru nýjar myndir..
Um bloggið
Guðrún og Valdi
Bloggvinir
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (15.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 13
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 9
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Gaman að lesa bloggið ykkar:) Og fá svona ekta fróðleik a la Guðrún beint í æð eins og um það hvaða fuglar eru með typpi hahaha:)
Líka flottar myndir:)
Kveðjos,
Halla
Halla (IP-tala skráð) 14.8.2007 kl. 18:01
Ég hef farið þennan veg niður á Seyðisfjörð og hann er ekkert grín fyrir lofthrædda.
Hver er Jakoba???
Kveðja, Gerður.
Gerður Bjarnadóttir. (IP-tala skráð) 14.8.2007 kl. 18:55
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.