Rólegheit á Egilsstöðum.

Í gær var algert Majorkaveður hér fyrir austan, gersamlega óþolandi heitt. Eftir að Valdi var búinn að vinna þá ákváðum við að fara í sund en það var svo pakkað fyrir utan af bílum þannig að við bara ákváðum að rúnta inn í Hallormsstaðaskóg og fara í sund þar. Ég keypt mér ís svo þetta var hinn besti bíltúr en þegar við komum inn í Hallormsstaðaskóg þá kom í ljós að sundlaugin var lokuð í allt sumar.. Jæjja við kíktum í staðin á fyrirhugað lóðasvæði þarna í Réttarkambi, frekar spennandi lóðir þar að fara í úthlutun. En þá ákváðum við að fara í sund á Eiðum.. sem er alveg 15 km í hina áttina frá Egilsstöðum miðað við Hallormsstaðaskóg svo enn var rúntað af stað en þá var víst bara engin sundlaug á Eiðum.. Við Valdi viljum nú meina að þar hafi allavega einhvern tíman verið sundlaug. Við fórum þá í heimsókn til Benna og Höllu til að kíkja á Gabríel Snæ sem er tiltölulega nýfæddur og alger dúlla.. Svipsterkur og flottur. Þar hitti ég hana Lilju Filipusar sem er á leið í nám til Alnarp svo við gátum nú mikið spjallað. Hún og Vaggi voru að senda bílinn sinn með Norrænu í gær.. Vaggi og Hlynur Gauti voru úti í garð að smíða pall með Benna svo ég missti af því að hitta þá sem er nú reyndar alveg fáránlegt að klúðra því.  Valdi hitti þá því hann fór í pallasmíðina líka... Eftir þessa heimsókn þá fórum við loksins í sund á Egilsstöðum en sundlaugin þar er stórfín og pottarnir frábærir, vel heitir og hæfilega djúpir en ég er með algert antípat á grunnum pottum. Síðan var bara skriðið upp í sófa með snakk og prjónaskap en sakir þreytu var farið snemma að sofa..

Í dag er Valdi búinn að vinna og ég fékk að sitja inni á Héraðsskógum í nettengingu og er í útréttingum eða tölvu- og símavændi eins og ég kalla þetta... Tryggingamál, leigumál, skólamál, vinnumál... allskonar stúss... Ég er enn á skrifstofunni en Valdi er að koma að sækja mig því jeppinn er kominn úr viðgerð, eitthvað dularfullt ískur sem var að gera okkur áhyggjufull fyrir brottför.. Svo sækjum við börnin þrjú í kvöld klukkan hálf níu..

Kveðjur í bili


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Bara láta vita að ég fylgist alltaf með ykkur... Góða ferð til Færeyja  Guðrún þú verður að lofa mér að vakna snemma á föstudaginn þannig að þú getur séð fínu eyjarnar mínar  Norræna siglir nefninlega helviti nálægt og verður það þess vegna mjög flott að sjá.

Elin (IP-tala skráð) 13.8.2007 kl. 13:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Guðrún og Valdi

Höfundur

Guðrún og Valdi
Guðrún og Valdi

Fyrir framan Álfhólinn á Hvanneyri..

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 11
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband