8.8.2007 | 16:03
Komin austur!
Púff...
Jæjja þá erum við komin austur á Egilsstaði. Á mánudaginn pökkuðum við og þrifum og það var líka gestagangur.. Elvar og Helma komu ásamt dóttur sinni henni Gummu, það var nú stutt stopp en gott að losna við eitthvað af bakkelsinu og gaman að hitta þau... Við ætluðum svo að vera lögð af stað í síðasta lagi upp úr hádegi á þriðjudag en svo bara flæktust málin.. Ég þurfti að funda með Áskel fyrir brott för og láta tékka á nýju tölvunni hjá Guðjóni tölvufræðingi. Við vorum náttúrulega gersamlega útkeyrð af þreytu, höfðum verið að til tvö eða þrjú nóttina næturnar áður og vaknað sjö... En það var bara haldið áfram og við gáfum okkur ekki tíma til að skjótast í Kollubúð og fá okkur pulsu þar sem við héldum í alvöru að við værum rétt að fara að leggja í hann.. Þegar átti að fara að taka mikla ryksugutörn þá fór rafmagnið og þetta var allt í þessum dúr... En loksins komu svo Hildur og Hlynur að sækja stólana og við skúruðum okkur út eftir að hafa afhent Úllu nýja leigjandanum lyklana.. Númeraplöturnar ætluðu reyndar aldrei að nást af Rollunni (Corolla) en loksins hafðist það og við ókum út af Hvanneyri og ég held ég hafi aldrei séð Skessuhornið jafn fallegt og þegar við ókum í burtu.. Ský eða þoka á bakvið svo Skessuhornið tróndi alveg eitt og sér og tignarlegt... En jæjja þegar við komum svo í Borgarnes þá þurfti að taka bensín og skila af okkur ónýtum batteríum og skila lyklunum í göngin.. En þá var einhver megabilun hjá N1 í Hyrnunni og allt í steik.. En einhvern veginn hafðist þetta... Og þá var komið að því að borða fyrsta matarbitann þennan daginn enda klukkan orðin 19.00... En þá virtust bara allar samlokur búnar svo við hentum upp í okkur pulsu í Hyrnunni sem var ógeðslega vond en ósköp var gott að fá eitthvað í magann.. Jæjja og þá var loks ekið af stað.. Við fengum svo almennilegan kvöldmat í Hrútafirði og skiptumst á að keyra og sofa. Það var náttúrulega alveg týpískt að þegar við ókum í gegnum Mývatnssveitina mína þá var myrkur og ég s á ekki neitt. Síðast þegar ég ók þar í gegn í vetur þá var myrkur og svartaþoka.. Vonandi náum við að kíkja í fallegustu sveitina á landinu næstu helgi í björtu en ég hef ekki komið þangað í nokkur ár og er komin með veruleg fráhvarfseinkenni.
Við ókum svo inn til Egilsstaða um klukkan fjögur um nóttina eftir að hafa ekið í þoku öll Möðrudalsöræfin.. En þetta gekk ótrúlega vel þrátt fyrir þreytu.. Enda hefðum við nú bara gist á Akureyri ef við hefðum verið of þreytt til að keyra...
Nú sitjum við á kaffihúsi á Egilsstöðum í stórkostlegu veðri og við Valdi ætlum í bíltúr ..Íha...
Kveðjur frá Egilsstöðum
Um bloggið
Guðrún og Valdi
Bloggvinir
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (16.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 11
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Bara að kvitta, ákvað að kíkja hérna við áður en ég byrjaði að lesa. En nú hef ég enga afsökun lengur og verð að byrja! Hafið það gott á Egilstöðum og njótið þess að slaka á saman áður en næsta törn byrjar í útlandinu...
Kveðja frá Ås Bebba og co
Berglind (IP-tala skráð) 9.8.2007 kl. 07:38
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.